Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 85
MORGUNN
79
vakna upp.hinu megin, fengið svar eitthvað á þessa
leið: „Mér leið ákaflega vel. Mér fannst eins og ég væri
að vakna af löngum og nærandi svefni. Það var eins
og hálfrökkur umhverfis mig, þó ekki eins og kvöldhúm,
heldur eins og fyrsta gráleit dögunin væri að læðast
inn í herbergið til mín. Umhverfis mig var djúpur friður,
en skynjun mín var þessi augnablikin ekki ljós“. Sjálfur
hefi ég fengið svar á þessa leið, og margar frásagnir
crlendra manna fyefi ég lesið, sem hníga í sömu átt. —
Vitanleg|a vakna menn upp á næsta sviðinu með mjög
margvíslegu móti. Sumir virðast hafa fulla meðvitund
þegar í stað, eftir andlátið, en þá sýnist svo, sem innan
skamms séu þeir látnir sofna og friður kvöldhúmsins
sé lagður um stund yfir sál þeirra. Þannig er myrkrinu
þar falin heilög þjónusta við hina nýkomnu sál.
Fyrirbrigði spíritismans eru ekki auðvirðilegri fyrir
það, að á vissu stigi krefjast sum þeirra myrkurs, því að
þar eiga þau sammerkt við mörg þau fyrirbrigði í lífi
voru beggja megin grafarinnar, sem mesta þýðing hafa
fyrir oss og undursamlegast er fyrir komið af honum,
sem hefir í þjónustu sinni bæði myrkur og ljós.
Jón Auðuns.
Furðuleg tónsmíð.
---- . \
La Resie, greifi, sem ritaði margf um sálræn og dular-
full efni, segir m. a. frá því, hvcrnig hinn frægi fiðlu-
snillingur og tónlagahöfundur, Urham, samdi hið fagra
tónverk ,,Audition“ og segist honum frá á þessa leið:
„Urham var ákaflega guðrækinn maður. Tilbeiðslan
var mjög ríkur þáttur í skapgerð hans, svo ríkur, að
segja má, að hann hlafi skipt lífi sínu milli tónlistarinnar
og bænalífs. Hann hafði samið lag við hið fagra kvæði