Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 27
MORGUNN
21
koma þessar dularfullu myndir ekki fram á öllum plöt-
unum, heldur t. d. á 3., 5. og 8., séu plöturnar 12, og
mismunandi myndir á hverja plötu.
Þessi furðulega staðreynd um myndir á plötum, sem
rldrei hefir borizt nokkur ljósgeisli að, er vísindamönn-
unum algerlega óráðin gáta og sama máli gegnir raunar
um andamyndirnar svo kölluðu yfirleitt. Mér er því
ekki kleift, að koma með nokkra fullnægjandi skýring
ú, hvernig þær verða til, en vil leyfa mér, að ljúka þess-
um fáu orðum um þessar merkilegu myndir með því að
tilfæra niðurlagsorðin að ágætri og ljósri ritgerð um
þær, sem hr. Einar Arnórsson birti í tíunda árgangi
,,Morguns“, en þar segir hæstaréttardómarinn svo:
,,.... En ekki er við það að dyljast, að hugmyndir
spiritistanna komast langlengst í áttina til að skýra þessi
fyrirbrigði, og þegar þetta efni allt er skoðað í sambandi
við önnur sálræn fyrirbrigði, þá virðist skýring spirit-
istanna alls ekki svo ósennileg, sem þeim mun sýnast,
er ekki þafa kynnt sér rannsóknir á þeim til nolckurrar
hlítar og enga reynslu hafa sjálfir. í þeim fyrirbrigðum
er svo fjölmargt, sem bendir til þess, að framliðnir
rnenn séu að brúa, eða að reyna að brúa djúpið milli þess
tilvistarsviðs, scm vér svo nefndir lifandi menn erum á,
og þess, sem þeir teljast vera komnir á“.
Þótt margt sé í þessum furðulegu staðreyndum vafa-
samt og óvíst enn, munu langsamlega flestir hleypi-
dómalausir menn, sem rannsaka þessi efni, eiga örðugt
með að verjast þeirri ályktun, að dulrænu ljósmynd-
irnar séu einn þátturinn í hinni gerhugsuðu sókn her-
sveitanna að handan til þess að brúa djúpið mjlli þeirra
og vor.
SANNANIR AF LlKAMNINGUM.
í nýlegri bók um sálarrannsóknirnar skrifar höfund-
urinn, sem er þekktur lærdómsmaður í Bretlandi.á þessa
leið: ,,Því nær eitt þúsund svo kallaðir dauðir menn hafa
V