Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 56
5Q
MORGUNN
Að koma í veg fyrir styrjaldir.
Eftir Ernest Hunt1).
Aðalatriði spiritisntans er, að framhaldslíf eftir dauð-
ann er eðlis-staðreynd. Það er óháð trúarsetningum og
hugsanarökum. Þessa staðreynd er unnt að sanna með
sálarfræði, með fyrirbrigðum eðlilegs svefns og drauma,
aásvefns og meðalasvæfinga, með því að fara úr lík-
amanum og ferðast utan við hann.
Með þessu er sannað, að sálin lifir aðgreindu lífi við
líkamann, en af því má álykta framhaldslíf eftir dauð-
ann. Eða vér gerum fyrst ráð fyrir framhaldslífi og rök-
sönnum það með miðlafyrirbrigðum. Enn betra er þó,
að sameina báðar ályktunar aðferðirnar. Þessa þekk-
ingu verður að útbreiða seint og snemma þangað til hún
er orðin eign allra manna.
Rökréttur undirbúningur. Hin mikla þýðing þessarar
þekkingar er það, að gera öllum það að raunverulegri
vissu, að annar heimur kemur á eftir þessum, eins óbrigð-
ult eins og að þriðjudagur kemur eftir mánudag og nótt
á eftir degi. Heilbrigð skynsemi býður oss, að búa oss
undir þriðjudag á mánudegi og undir nóttinia á daginn.
Á sama hátt krefjast þessir tveir heimar, að vér í hinum
fyrri búum oss undir hinn síðari. Én það höfum vér ein-
mitt e k k i gert, vegna þess að vér þekktum enga knýj-
andi nauðsyn til þess. Þeir, sem komnir eru á undan yfir
um, kvarta hástöfum yfir þeirri vanrækslu vorri.
Vér sendum inn í annan heim allsendis óhæfa menn,
sem þekkja ekki byrjunaratriðin í því sem við tekur.
Þessir menn eru sjálfum sér til kvalar og erfíðleika og
valda þeim, sem í næsta heimi eru, baga, af því að þeir
þurfa sérstakrar umönnunar vegha fáfræði sinnar.
1) Nafnkunnur sálarrannsóknamaður og rithöfundur um þau
efni.