Morgunn - 01.06.1942, Blaðsíða 101
M O R G U N N
95
undarsviðanna í sálarlífi þeirra eru auðveldari og tíð-
ari.
Vér komum þá að þriðju skýringartilgátunni, sem
andstæðingar spiritistisku skýringarinnar hafa borið
fram. Ilún virðist í fljótu bragði einna sennilegust og
aðgengilegust, af þeim skýringartilgátum, sem nefnd-
ar hafa veríð. Þar er gert ráð fyrir því, að hæiileikar
þessir bendi til frjósprota eða vísa að nýjum skilning-
arvitum eða skyntækjum, sem eigi vöxt og þroska fyrir
höndum í lífi kynslóðanna. Hversu sennileg, sem hún
kann að virðast, fær hún þó eigi staðizt. Staðreyndir
þær, sem hér koma til greina, ónýta hana. ,,Þær knýja
mig til að kynna yður nýja skýringartilgátu“, segir
Bozzano, ,,þótt hún sé í beinni andstöðu við áðurgreind-
ar niðurstöðuályktanir". Efni hennar ,er á þessa leið:
,,Staðreyndir þær, sem hér liggja fyrir sanna það, að
óvenjulegir skynhæfileikar undirvitundarinnar séu ekki
og geti ekki verið afleiðing af líffræðilegri þróun teg-
undanna".
í þessu sambandi er óhjákvæmilegt að vekja athygli
á starfsemi skipulagsbundinnar líffræðilegrar þróunar.
Hún stjórnast af voldugu en jafnframt mjög einföldu
lögmáli, úrvali náttúrunnar. Sú staðreynd sannar það
blátt áfram, að náttúruvalið getur ekki verið orsök eða
tilefni þessara óvenjulegu skynhæfileika. Þeir eru ann-
arlegir og ósamhæfir skynsviði því, er þeir gera vart
við sig á. Samkvæmt þessu er ekki unnt að staðhæfa,
eð þeim sé festa eða þróun ásköpuð í lífi kynþáttanna,
i gerfi nýrra skilningarvita eða skyntækja. Bæta má því
við, að séu þessir óvenjulegu skynhæfileikar ekki af-
leiðing af úrvali náttúrunnar, þá liggur það Hka í aug-
um uppi, að áhrifaverkanir líffræðilegs þróunarlögmáls,
svo sem „sjálfvirkar breytingar", fá heldur ekki skýrt
orsök þeirra. Þetta leiðir beint af staðreyndum þeim,
er líffræðilegt þróunarlögmál leiðir í ljós. Þær sýna,
að ,,hinar sjálfvirku breytingar" eru afleiðingar áhrifa