Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 54
48
MORGUNN
ar aukna ábyrgð og skyldur, bæði gagnvart sjálfum sér,
meðbræðrum sínum og Guði.
Það er þess vegna, sem sálarrannsóknirnar eru mikil-
vægasta málið í heimi.
Sveinn Víkingur.
★
Frú Piper
sannfærði með miðilsgáfu sinni (lr. Hodgson, einn mesta efa-
semdamann meðal sálarrannsóknamanna. Hann hafði verið á-
hugamaður hinn mesti um að afhjúpa miðlasvik, og þegar
sálfræðingurinn lieimskunni, próf. William James, sagði honum
frá frú Piper og fullyrti, að fyrirbærin hjá henni væru þess
virði, að rannsaka þau ýlarlega, fór dr. Hodgson vestur um haf,
en fyrst og fremst til að sanna svik á frú Piper.
Um sjóferð þá fór svo, að eftir nokkurra ára tilraunir með
frú Piper, sannfærðist dr. Hodgson um, að ekki væru fyrir-
brigðin aðeins ósvikin, heldur væru látnir menn sannanlega
að verki með frú Piper.
Meðan hún var í transi, talaði ein veran af vörum hennar
og aðrar tvær skrifuðu sín með hvorri hendi hennar samtimis.
Naumast hefir verið ástúðlegri og ágætari samvinna milli mið-
ils og rannsóknarnanns en var milli frú Pipers og dr. Hodgsons.