Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 72
Furðulegur æviferill
Andrew Jackson Davies
★
Morgunn hefur nokkrum sinnum getið þeirra manna,
sem nefna má fyrirrennara spíritismans og sálarrann-
sóknanna. Einn þeirra var Ameríkumaðurinn Andrew
Jackson Davies, og mun lítið eitt verða sagt frá honum
hér.
Hinn ævintýralegi ferill þessa manns hófst fyrr en upp-
haf varð spíritisma nútímans. En við sögu hans og
raunar sálarrannsóknanna, þótt ekki tæki hann þátt í
þeim, hafði hann allmikið verið riðinn um 50 ára skeið,
er hann andaðist 84 ára gamall árið 1910. Flestir létu sér
fátt um hann finnast, þótt ekki kynnu þeir skýringar
á lífi hans og starfi. Þeir, sem persónulega höfðu þekkt
hann og starf hans, töldu hann merkilegan mann. Auk
þeirra undarlegu fyrirbrigða, sem urðu í lífi hans, dáðu
hann vinir hans mjög fyrir óeigngjarnt og göfugt líf.
Hann fæddist í smáþorpi í New-York-fylki árið 1826
og var af snauðum og gersamlega ómenntuðum foreldr-
um kominn. Hann var nýlega byrjaður á skósmíðanámi,
þegar furðuleg þáttaskil urðu í lífi hans.
Menntun hafði hann sáralitla fengið, svo litla, að á
16. aldursári hafði hann ekki lesið nema eina bók, og
hana auðvelda. En þegar á æsku hans leið, tóku sálrænar
gáfur að vakna með honum, bæði dulskyggni og dulheyrn.
En spíritismi nútímans var þá enn ekki kominn til sögu,
svo að skilningur var lítill sem enginn á hæfileikum
drengsins. Mun þekkingarleysið hafa háð honum alla
ævi og það, að enginn, sem til hans þekkti, var þess