Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 49
MORGUNN
43
dómsneista mannsins. Síðan gengu þeir allir á ráðstefnu
til þess að ræða og taka ákvörðun um, hvar þeir ættu að
fela hann, svo að maðurinn skyldi ekki endurheimta eign
sína. Einn guðanna stakk upp á því, að þeir skyldu fela
guðseðli mannsins á fjarlægri stjörnu, því þar gæti maður-
inn aldrei nálgast það. Þá stóð upp annar úr hópi guðanna
og sagði að þetta væri engan veginn öruggur felustaður,
sökum þess að manninum væri sterk útþrá í brjóst lagin,
og því væri ekki unnt að þvertaka fyrir það, að honum
kynni einhvern tíma að takast að komast alla leið til fjar-
lægra hnatta. ,,Við skulum heldur“, sagði hann, „fela guðs-
neistann í djúpi hinna miklu hafa, þá mun hann aldrei
finnast“. Þá tók sá þriðji til máls og benti á það, að mað-
urinn legði mikla stund á náttúruvísindi og náttúruskoð-
un og að sá dagur kynni að renna, að hann gæti kannað
ekki aðeins hinar hæstu hæðir, heldur einnig hin dýpstu
djúp. Þannig héldu guðirnir áfram að ræða þetta mikla
vandamál og sýndist sitt hverjum. Að endingu datt þó ein-
um þeirra mikið snjallræði í hug. „Við skulum“, sagði
hann, „fela hinn dýrmæta gimstein guðdómseðlisins í
brjósti mannsins sjálfs, því þar mun honum allra sízt
detta í hug að leita að honum“. Þessu ráði tóku allir guð-
imir fegins hendi, því þeim skildist, að þarna var fundinn
sá felustaðurinn, sem væri öruggastur allra — og slitu
samkomunni. — Og um alda raðir hefur svo virzt, að hið
sanna ljós falið í hjarta mannsins, mundi aldrei finnast.
Þegar við hugsum um þessa sögu, verður því varla neit-
að, að guðirnir hafa reynst hryggilega sannspáir. Mann-
kynssagan sýnir það áþreifanlega. Við höfum keppt að því
og keppum að því enn með vaxandi hraða, að kanna hæð
og dýpt hins sýnilega efnisheims. Við höfum beizlað svo
reginefldar orkulindir, tekið þvílíkum framförum á tækni-
sviðinu, að allt mannlíf og aðstæður þess, hafa á tiltölu-
lega skömmum tíma gjörbreytzt á öllum sviðum. Orka sú,
sem við í’áðum yfir, er svo að segja takmarkalaus og við
erum á góðri leið með að ná til stjarnanna og höfum þeg-