Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 8
2
M O R G U N N
Því miður urðu umræður cftir framsöguerindin ekki miklar.
Sra Sveinn Víkingur, forseti S.R.F.f. mælti skörulega og var
gerður mikill rómur að máli hans. Þá tóku til máls tveir fund
armenn, sem báðir reyndust úr hópi heittrúarmanna, frú
Sigíður Sigurðardóttir og Þórarinn Magnússon. Komu þau sama
og ekki við málið sjálft, en vöruðu við spiritisma sein hættu-
tegum sálarvelferð manna og óleyfilegri stefnu kristnum mönn-
um. Kenndi þar mest upphrópana og stóryrða, og var mál-
flutningur þeirra gott dæmi þess, livernig ,trúað fólk“ ræðir
þetta mál. Enda var svo að sjá, sem sumir þeirra, sem komnir
voru til þess að heyra röksemdir spíritismans rifnar niður,
væru iítt hrifnir af málsvörum sínum.
Sra Lárus Arnórsson prestur i Miklahæ tók þá til máls,
varði spíritismann kröftuglega i stutlu máli og benti konunni,
sem til máls hafði tekið, á það, hve hugsandi fólki væri ger-
samlega óstætt á þeim bókstafskristindómi, sem hún túlkaði.
Að lokum tóku frummælendur báðir til máls og að endingu
fundarstjóri, sem þakkaði ræðumönnum málflutning og gest-
um hina miklu fundarsókn.
★
JÓN AUÐUNS:
Sálarrannsóknir og spíritismi
Framsöguerindi á umræðufundi Stúdentafélags
Reykjavíkur 21. apríl 1961
Herra formaður, góðir fundarmenn,
með ánægju tók ég þeim tilmælum fonnanns þessa félags,
að gerast annar framsögumaður á þessum fundi um mál,
sem ég hefi varið allmiklum tíma til að kynna mér og
raunar öðrum líka. Auglýst hefur verið, að hér yrði rætt
um spíritisma og sálarrannsóknir, en þeim tveim hugtök-
um er tíðum ruglað saman. Sálarrannsóknir — psychical
research — hefur sú grein rannsókna verið nefnd, sem
fæst við svokölluð dulræn fyrirbrigði. Um ályktanir, sem