Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 59
M O R G U N N
53
efni, fór hún á miðilsfund. Af vörum miðilsins var talað
við vinkonuna lengi og ýtarlega um ýms fjölskyldumál,
sem vinkonan átti engan veginn von á. M. Lawrence segir:
;,Meðan á þessu gekk, sat vinkona mín og brosti þóttalega
og hróðug. Hún hafði sagt mér áður en ég fór með henni
á fundinn, að ef eitthvað yrði við sig um fjölskyldumál
sagt, sem hún kannaðist við, vissi hún ofur vel, að allt væri
það sótt í huga sinn og lengra ekki.“
Þá sagði rödd af vörum miðilsins vinkonunni, að hún
ætti bi'óður í andaheiminum. Hann hefði fæðzt um það
bil fjórum árum á undan henni og ekki lifað nema nokkra
mánuði á jörðunni. Þessu gat virikonan loks ekki samsinnt.
Hún kvað þetta ekki geta náð nokkurri átt, því að vafa-
iaust hefði móðir sín sagt sér, ef hún hefði nokkru sinni
eignazt son, þótt látizt hefði eftir nokkra mánuði. Móðir
hennar hafði verið amerísk, en faðir hennar Breti.
Um það bil viku síðar hringdi vinkonan M. Lawrence
upp í síma og var öll í uppnámi. Henni hafði tekizt að ná
sambandi við ömmusystur sína, ameríska, sem var hinn
eini nákomni ættingi hennar á lífi. Af vörum gömlu kon-
unnar fékk hún nú að vita í fyrsta sinn, að móðir hennar
hefði verið tvígift, — en nú var hún látin fyrir nokkru.
Fyrst hefði hún gifzt bamung amerískum ævintýramanni,
sem hafði farið ákaflega illa með hana og lokið lífi sínu
í fangelsi. 1 örvæntingu sinni og smán ákvað unga ekkjan,
að ef sér auðnaðist að giftast aftur, skyldi hún grafa allar
minningar um fyrra hjónabandið. Hún giftist ekki löngu
síðar Englendingi — föður vinkonunnar sem hér á hlut
að máli. Bæði fjölskylda hennar og seinni maður studdu
hana drengilega í því að grafa fortíðina. Og það var þeim
mun auðveldara, að nýgift fluttist hún með síðari manni
sínum yfir Atlantshafið og til Bretlands.
En hið merkilegasta er þetta: í hjónabandi með fyrra
manninum hafði hún eignazt einn son, sem andaðist fárra
mánaða gamall.
I blaðagreininni spyr Margery Lawrence: „Hvar eruð