Morgunn - 01.06.1961, Blaðsíða 63
M 0 R G U N N 57
konunnar er Jane. Ljóðið byrjar þannig (þýtt á óbundið
mál):
„Velkomin, elskan mín, hjartanlega býð ég þér góðan
dag. / Dagurinn er dimmur, en andlit okkar skulu ljóma..
/ Því að rósin táknar kærleikann og liljan hreinleikann..“
Það merkilega er, að önnur telpan hét Rósa og hin Lilja.
Þá er auðskilið, hve ágæt þessi sönnun er.
Hvernig gat þetta verið tekið úr huga móðurinnar, sem
alls ekki kom fyrir sig bókinni, þegar stjórnandi miðils-
ins sagði móðurinni frá henni. í ljóðinu á bls. 115 voru
bundin nöfn dætranna tveggja, sem hún harmaði mikið.
Móðirin hlaut af þessu sína dýrmætu huggun. Enda var
sönnunin, sem hún fékk hjá miðlinum jafn hugðnæm og
hún var sterk.
★
Kirkjan og skýjakljúfurinn
predikanasafn sra Jóns Auðuns dómprófasts, hlaut ágœtar við-
tökur og ritdómendur gátu þess i blöðum lofsamlega.
Bókin fæst enn hjá bóksöluin og er tilvalin vinagjöf. Hún er
i flokki þeirra bóka, sem halda gildi sínu, þótt árin líði og margir
grípa til aftur og aftur.
Ekkert predikanasafn, sem hér hefir koinið út, síðan Árin og
Eilífðin kom, ber þess eins glögg merki og þetta, hve ljós er og
lifandi kristindómstúlkun prests, sem nákvæma þekkingu hefir
á sálarrannsóknamálinu og jákvæða afstöðu til þess.
Úlgef.