Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 33
Björn Þorri Uiktorsson, héraðsdómslögmaður og löggiltur
fasteignasali. Hann er formaður Félags Fasteignasala.
Karl Georg Sigurbjörnsson, hæstaréttarlögmaður og löggiltur
fasteignasali.
Góður bakgrunnur
Fasteignasalan Miðborg er stofnuð árið 1996 og Lögmenn
Laugardal um sama leyti. Við höfðum átt samleið í lagadeild Háskóla
íslands og útskrifuðumst þaðan 1994. Báðir höfðum við starfað við
fasteignasölu og þegar kom að samstarfi lá beinast við að fara út
fasteignaviðskipti auk almennra lögfræðistarfa. Lögfræðimenntun er
einhver besti bakgrunnur sem hægt er að hugsa sér fyrir þá sem
ætla sér að stunda fasteignaviðskipti. f upphafi var starfsemi lög-
mannastofunnar minni en fasteignasalan. Sú starfsemi hefur hins
vegar aukist jafnt og þétt og má segja að í dag sé um helmingaskipti
að ræða þegar talað er um stærð fyrirtækjanna. Hjá fyrirtækjunum
starfa samtals tíu manns. Fjórir sölumenn fasteigna, tveir héraðs-
dómslögmenn og tveir sérhæfðir skrifstofustarfsmenn, auk eigenda."
Karl og Björn segja rekstur fasteignasölunnar og lögmannastof-
unnar hafa farið fram úr björtustu vonum: „Við fórum inn á þröng-
setinn markað en reynsla okkar nýttist vel við að byggja upp starfið í
kringum fasteignasöluna. Við höfum alltaf haft duglegt fólk í vinnu og
smám saman varð Miðborg ein af stærstu fasteignasölunum. Það
má einnig segja að reynsla okkar af félagsmálum fasteignasala hafi
reynst okkur vel. Öll umræða og kynning innan stéttarinnar eru af
hinu góða og styrkir þá í starfi sem taka þátt í henni. Umsvif lög-
mannastofunnar eru sífellt að aukast og erum við með fjölda fastra
viðskiptavina, aðallega fyrirtæki og stærri félög. Öll almenn lögfræði-
störf eru til meðferðar á skrifstofunni, en þó höfum við sérstaklega
eínbeitt okkur að málflutníngi fyrir dómstólum og ráðgjöf á sviði
samninga- og félagaréttar."
Bjart framundan
Með nýjum lögum um fasteignasölu mun umhverfi slíkra viðskipta
breytast til hins betra að mati Karls og Björns: „Það er engin spurning
að þessi nýju lög sem við, á vettvangi Félags fasteignasala, höfum átt
þátt í að koma á, gera fasteignasölu mun skilmerkilegri, öruggari og
aðgengilegri fyrir alla sem að víðskiptunum koma. Einnig munu fast-
eignakaup verða einfaldari þegar peningalán taka við af húsbréfum í júlí
nk. Þá þurfa fasteignasalar ekki lengur að eyða miklum tíma í að
útskýra flókin viðskipti með verðbréf fhúsbréf) fyrir venjulegu fólki sem
er alla jafna ekkert að velta slíkum hlutum fyrir sér. Kerfið verður allt
mun gegnsærra og aðgengilegra fyrir alla sem að því koma."
Karl og Björn líta björtum augum til framtíðarinnar. „Það er mikil
samkeppni í sölu á fasteignum, en öll eðlileg samkeppni er af hinu
góða. Við höfum náð að festa okkur í sessi í rekstri fyrirtækja okkar
og ætlum okkur að halda áfram á sömu braut. Við leggjum allan okkar
metnað í störf okkar og okkur finnst alltaf jafn ánægjulegt að sjá að
viðskiptavinir okkar leita til okkar aftur og aftur. Góð þjónusta og
ánægðir viðskiptavinir eru besta auglýsingin til framtíðar.“S)]
Laugavegur 182 • 105 Reykjavík.
Veffang: www.midborg.is
Sími: +354 533 4800
Fax: +354 533 4811