Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 110

Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 110
KONUR I UIÐSKIPTALIFINU Halldóra Káradóttir, deildarstjóri vöruhúsadeildar Samskipa. Samskip: Allt á einum stað VÖruhúsastarfsemi Samskipa hefur verið mjög dreifð og verið rekin í fimm húsum síðustu ár. I haust mun fyrirtækið flytja nánast alla starfsemina í nýtt og stórt vöruhús sem verið er að byggja við Kjalarvog. „Við erum að flytja í rúmlega 25.000 fermetra hús. Þrengslin hafa háð okkur mikið en það mun ekki aðeins rýmkast um okkur heldur sjáum við fram á einföldun og hag- ræðingu í allri starfsemi félagsins við þessar breytingar," segir Halldóra Káradóttir, deildarstjóri vöruhúsadeildar. „Öll vörumóttaka, innflutningur, losun á gámum, vöruhýsing, tollvörugeymsla, frystivörulager, flugafgreiðsla og Landflutn- ingar, allt fer þetta í nýja húsið. Sem dæmi um fyrirsjáanlega hagræðingu er að allur akstur milli húsa fellur niður en hann hefur verið töluverður eins og gefur að skilja. Auk vöruhús- anna flytja Samskip og Jónar Transport aðalskrifstofur sínar í sama húsnæði," bætir Halldóra við. Nýtt tölvukerfi Hingað til hafa nokkur mismunandi tölvukerfi haldið utanum vöruhúsastarfsemi Samskipa en samhliða flutn- ingunum er unnið að því að innleiða eitt tölvukerfi í alla starf- semi hússins. „Til þess að samhæfa og halda utan um hina flóknu starfsemi sem kemur saman undir eitt þak var ljóst að við þyrftum að vera með eitt tölvukerfi," segir Halldóra. „Við höfum fest kaup á kerfi sem heitir Manhattan WMOS, eða Warehouse Management for Open Systems, sem er staðlað tölvukerfi og sérstaklega hannað til þess að halda utan um flókna vöruhúsastarfsemi. Við höfum þegar innleitt kerfið í tollvörugeymslunni og stefnum að því að taka það upp það í innflutningi og vöruhýsingu í sumar. Markmiðið er að hafa komið kerfinu að mestu í gagnið áður en við flytjum í nýja húsið.“ Kynið skiptir ekki máli Haiidóra útskrifaðist frá viðskiptadeild HI árið 1995 og hóf þá strax vinnu hjá Sam- skipum. „Eg var fyrstu fjögur árin aðstoðarmaður forstjóra og var í ýmsum sérverkefnum. Eg vann mikið með framkvæmdastjórninni og fékk góða innsýn í það hvernig fyrirtækinu er stjórnað," segir hún. „Eg tók við starfi deildarstjóra vöruhúsa fyrir tæpum 5 árum.“ Eins og gefur að skilja eru ekki margar konur í deild Halldóru en hún segir það ekki þreyta neinu. „Eg legg áherslu á að vinna náið með min- um undirmönnum og hafa þá með í ákvarðanatöku," segir hún. „Þannig er hægt að tryggja að td. breytingar nái fram að ganga, því það er oftast í þeirra verkahring að framkvæma, innleiða og sjá til þess að hlutirnir virki niðri á gólfinu. Eg veit ekki hvort stjórnunar- stfll rninn er eitthvað öðruvísi fyrir það að ég er kona. Það sem reynist mér best er að skoða málin vel og flana ekki að neinu. Starfið hefur verið mér mikill lærdómur en ég held að kynið hafi ekki skipt máli. Fyrst í stað held ég þó að menn hafi tekið mér með meiri varúð vegna þess.“ Flókin starfsemi Starfsemin í hinu nýja vöruhúsi verður umfangsmikil og fjölþætt. Bæði er verið að meðhöndla toll- afgeidda og ótollafgreidda vöru. Þá er annars vegar verið að meðhöndla vörur í birgðum og hins vegar sendingar. „Það er gjörólíkt að sinna birgðahaldi eða vörusendingum. Við birgðahald þarf að halda utanum ítarlegar vörulýsingar og upplýsingar um magn og innihald og vara er afgreidd eftir pöntun allt niður í eitt stykki. Við meðhöndlun á sendingum þarf að halda utanum ijölda kassa eða bretta pr. sendingu, en minni þörf á ítarlegum innihaldslýsingum, þótt alltaf skipti máli um hvaða vörutegund sé að ræða,“ segir Halldóra. „Við höfum verið í mikilli skipulagsvinnu í allan vetur til að undirbúa flutn- inginn í nýja húsið og erum að yfirfara alla vinnuferla. Rekjan- leiki vöru og sendinga er gríðarlega mikilvægur til að tryggja hratt og öruggt flæði í gegnum húsið. Þetta þarf að skipuleggja fyrirfram og það eitt að skipuleggja flæði þílanna sem koma daglega að húsinu er flókið verkefni. Markmið Samskipa og Jóna Transport er fyrst og fremst að bæta þjónustuna og með þessu nýja húsnæði opnast mörg tækifæri sem við munum nýta okkur til hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar.“ 33 Við Kjalarvog eru Samskip að byggja stærsta vöruhús landsins. no
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.