Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 104
Saga Boutique:
Fjölbreytt og skemmtilegt starf
Vöruúrvalið hjá Saga Boutíque hefur aldrei verið meira en nú,
bæði í flugvélum og versluninni í Leifsstöð.
Hlutverk Saga Boutique hefur breyst nokkuð frá upphafi
þegar þetta var hluti af þjónustudeild Icelandair,“ segir
Ragnhildur Gunnarsdóttir forstöðumaður. „Síðustu fimm
árin hefur Saga Boutique verið sjálfstæð afkomueining innan
Icelandair. Innan afkomueiningarinnar er rekin tvenns konar
starfsemi, annars vegar verslunin í Leifsstöð og hins vegar sal-
an um borð í Qugvélunum."
Ragnhildur hóf feril sinn hjá Loftleiðum sem flugfreyja í
sumarstarfi. „Eg starfaði í nokkur ár með hléum sem flugfreyja
og þekki því ágætlega aðstæður um borð og það kemur sér
auðvitað vel í núverandi starO.“
Ragnhildur hélt áfram námi efdr stúdentspróf og lauk BA-
prófi í frönsku og sagnfræði. „Svo fór ég nokkrum árum seinna
til Sviss þar sem ég lærði ferðamálafræði."
Kona í karlaheimi Þegar ég tók við þessu starfi hafði
karlmaður sinnt þvi á undan mér en ég hef verið hér samfleytt
Ragnhildur Gunnarsdóttir, forstöðumaður Saga Boutique:
„Þessi „duty free"-heimur er að miklu leyti karlaheimur þó
það sé smátt og smátt að breytast."
í 10 ár nú,“ segir Ragnhildur.
„Þessi „duty free“-heimur er að
miklu leyti karlaheimur þó það sé
smátt og smátt að breytast en í
raun eru vörurnar mjög mikið
ætlaðar konum.“
Ragnhildur segir starfsemi
Saga Boutique flókna þar sem
bæði séu margir útsölustaðir og ferlið allt annað en við hefð-
bundinn innflutning þar sem varan er keypt tollfrjáls og mikið
samstarf er við tollinn og flugvallaryfirvöld.
„Við þurfum einnig að gæta þess vel að vera með sérstakar
vörur sem ekki fást hvar sem er, hæfilegt úrval og um leið að
það fari ekki mikið fyrir vörunum og að það taki ekki langan
tíma að selja þær. Einnig þarf að passa upp á að vera í takt við
þann þjónustustaðal sem Icelandair setur sér því þó Saga
Boutique sé rekin sem sjálfstæð eining er hún um leið andlit
Icelandair út á við. Við erum nokkuð frábrugðin öðrum
erlendum flugfélögum þar sem við seljum til dæmis ekki
tóbak. Afengi seljum við í litlum mæli, einnig höfum við boðið
upp á mjög vandaða skartgripi alla tíð. Vöruúrvalið hefur
fengið mjög jákvæð viðbrögð erlendra farþega sem og íslend-
inga sem hafa verið góðir viðskiptavinir í gegnum tíðina. Við
höfum einnig ríka þjóðerniskennd og seljum íslenskar vörur
þegar hægt er og það má geta þess til gamans að við höfúm
selt mörg þúsund egg eftir listakonuna Koggu.“
Flughafnarverslunilt í Leifsstöð rekur Saga Boutique allt
öðruvisi verslun en þá sem fram fer í háloftum. Þar er vandaður
hátískufatnaður og fylgihlutir og segir Ragnhildur að margir
notfæri sér það á leið út þegar lítill tími gefst til að pakka heima
fyrir. „Við eigum marga fasta viðskiptavini sem koma við og
kaupa það sem þá vantar fyrir ferðina. Margir athuga fyrirfram
hvað hefúr komið nýtt í búðina og eru búnir að ákveða áður en
þeir leggja af stað hvað skal kaupa. Þarna gildir að vera með
góðar vörur og á góðu verði og virðist aukningin í versluninni
benda til að okkur hafi tekist það.“ I starfi sem þessu hlýtur að
vera nokkurt álag en Ragnhildur segist hafa gaman af þvi.
„Maður á samskipti við mikið af fólki og eignast kunningja og
vini um allan heim. Eg vinn auðvitað talsvert en með mér er
gott fólk og þetta gengur vel. Frítímanum ver ég oft í ferðalög
og fer þá gjarnan með vinahópi sem hefur farið víða, m.a. til
Víetnam og Malasíu en skíði eru ofarlega á tómstunda-
listanum og svo auðvitað eitt barnabarn," segir Ragnhildur
um leið og hún kveður og snýr sér að næsta verkefni. SH
104