Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 109
Björg Þórðardóttir, markaðsstjóri hjá 101 Skuggahverfi.
101 Skuggahverfi:
Stórborgarhjartað slær í okkur öllum
Miðborg Reykjavíkur hefur upp á margt að bjóða, svo sem búsetu allra
aldurshópa, afþreyingu, menningu, iðandi mannlíf og margt fleira.
Ibúðabygging í Skuggahverfinu hefur vakið mikla athygli.
Þarna er um að ræða sérstaklega vandaðar íbúðir í miðbæ
Reykjavíkur, íbúðirnar eru af mörgum stærðum og gerðum
og henta öllum aldurshópum, en eiga það sameiginlegt að vera
fyrsta flokks og öðruvísi en það sem í boði er á bygginga-
markaðnum í dag.
„Fólk sækist eftir því í auknum mæli að búa í miðbæ borga,“
segir Björg Þórðardóttir, markaðsstjóri hjá 101 Skuggahverfi.
„Það er stutt í stórborgarhjartað í okkur og við viljum gjarnan
vera í göngufæri við iðandi mannlíf og það sem miðborgin
hefur upp á að bjóða.“
Björg segir íbúðirnar, sem teiknaðar eru af dönsku
arkitektastofunni Schmidt, Hammer og Lassen, í samvinnu við
islensku arkitektastofuna Hornsteina, vera skipulagðar með
það í huga að þær henti sem flestum aldurshópum. „Það hefur
svolítið borið á því að fólk telji ekki hagkvæmt fyrir barnafólk
að flytja í miðbæinn en það er mesti misskilningur. I mið-
bænum eru valkostir varðandi skólagöngu barna og unglinga
og má þar nefna Austurbæjarskóla, Landakotsskóla og
Tjarnarskóla og er þar hægt að velja um einkarekna skóla eða
þessa hefðbundnu. Einnig er um að ræða nokkra leikskóla á
svæðinu. Búseta i miðborginni gerir aðstandendum barna
auðveldara fyrir með að kynna þeim m.a. söfnin og það sem til-
heyrir sögunni okkar og er staðsett í miðborginni. Við Islend-
ingar mættum kannski gera örlítið meira af því að heimsækja
söfnin með börnin okkar. Grænusvæðin í miðborginni eru
falleg og henta vel til útivistar fyrir tjölskyldufólk."
Björg flutti til Reykjavíkur fyrir rúmum áratug og henni
fannst ekki annað koma til greina en að setjast að í mið-
borginni. „Mér finnst frábært að vera í göngufæri við alla þá
þjónustu og menningu sem í miðborginni er,“ segir hún. „Það
er notalegt að geta rölt á kaffihús og sest þar niður með kaffi-
bolla, blað eða bók. Þá líður mér oft eins og ég sé stödd í ein-
hverri stórborga Evrópu."
Margir þeirra sem flytja í Skuggahverfið eru að koma úr
stórum einbýlishúsum og vilja sleppa við amstrið sem fylgir því
að sinna garði og viðhaldi húsa.
„Ibúðirnar eru frá um 70 fm og upp í að vera rúmlega 270
fm,“ segir Björg. „Og eru í flestum tilfellum aðeins tvær íbúðir
á hæð, lyftuhúsin skilja íbúðirnar að svo þær liggja ekki hvor
að annarri, og flestar hafa þær þijá útveggi. Ibúðirnar eru
bjartar með stórum gluggum, lofthæðin er 2,70 m og allar
innréttingar fyrsta flokks. Sérstaklega er hugað vel að hljóð-
einangrun milli hæða. Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um
framkvæmdirnar geta farið inn á heimasíðu okkar,
www.101skuggi.is, en þar eru þrívíddarmyndir og ýmis
fróðleikur um íbúðirnar og svæðið allt. Ibúðirnar í þessum
fyrsta áfanga verða afhentar í haust og síðan verður hafist
handa við næstu áfanga og áætlað að 101 Skuggahverfi verði
fullbyggt í lok ársins 2007.“ S3
109