Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 62
Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Islands.
Björk Guðmundsdóttir söngkona.
Hafa komið Íslandi á kortið:
Vigdís og Björk
Vigdís Finnbogadóttir og Björk Guðmundsdóttir eru ekki aðeins þær íslensku konur sem hafa
orðið þekktastar heldur þeir Islendingar sem hlotið hafa mesta heimsfrægð.
Textí: Jón G. Hauksson Myndir: Morgunblaðið
Einhver kynni að segja að þær væru áhrifamestu konur sem
ísland hefði alið. Raunar ekki í hinu hefðbundna viðskipta-
lífi heldur miklu frekar hinu „óhefðbundna viðskiptalífi".
Þær hafa báðar kynnt Island meira en nokkrir aðrir Islendingar
með heimsfrægð sinni. Þær hafa komið Islandi á kortið og verið
bestu „sölu- og markaðsmenn" ferðaþjónustunnar frá upphafi,
„selt landið" fyrir ferðaþjónustuna með þeim hætti að seint
verður jafnað.
Björk Guðmundsdóttir söngkona er sá Islendingur sem náð
hefur mestri heimsfrægð. Heimurinn virðist vita að „Bjork“ er
frá íslandi - hvort sem menn hafa áhuga á tónlist eða ekki. Björk
er ekki bara söngkona, hún er mikil athafnakona og með mikið
viðskiptavit. Hún hefur alla tíð farið sínar eigin leiðir í útgáfu á
tónlist og haldið utan um sín flármál með eigin útgáfufyrirtæki.
Björk er í raun stórt fyrirtæki og hún er einn ríkasti Islend-
ingurinn.
Vigdís Finnbogadóttir öðlaðist
heimsfrægð þegar hún var kjörin fyrst
kvenna forseti í heiminum árið 1980.
A einni nóttu vissi heimsbyggðin um
að kona væri orðin forsetí á Islandi.
Hún varð í kjölfarið þekktasti íslendingurinn. Allir vissu að
forseti íslands héti Vigdís. Björk varð síðan arftaki hennar í
heimsfrægðinni upp úr 1990 og gerði gott betur.
Vissulega hafa þjóðkunnir Islendingar eins og Halldór Kiljan
Laxness, Friðrik Olafsson, stórmeistari í skák, og áfrarn mætti
telja, verið landinu ómetanleg kynning. Flestir eru þó á einu
máli um að engir Islendingar hafi orðið svo heimskunnir sem
þær Vigdís og Björk.
Vigdís Finnbogadóttir varð með kjöri sínu sem forseti helsti
leiðtogi kvenna á Islandi sem og þjóðarinnar allrar.
í samtali við Ásdísi Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra í
Garðabæ, í bókinni „í hlutverki leiðtogans" sem út kom haustið
2000, segir Vigdís meðal annars þetta: „ Við ungt fólk, sem
hefur áhuga á forystustörfum, segi ég að það eigi að rækta sjálft
sig og treysta á sjálft sig. Það á að beita sig aga og leita að lífs-
fyllingu sem er fyrir ofan hin verald-
legu gæði. Þó að mér hafi fúndist ég
vera á berangri þá hika ég ekki við að
hvetja ungt fólk til að vera í forystu og
alltaf þykir mér jafngaman að sjá ungt
fólk á leið í leiðtogahlutverk.“ S3
„Við ungt fólk, sem hefur áhuga á
forystustörfum, segi ég að það eigi að
rækta sjálft sig og treysta á sjálft sig. Það
á að beita sig aga og leita að lífsfyllingu
sem er fyrir oíanhin veraldlegu gæði.“
62