Frjáls verslun - 01.05.2004, Blaðsíða 138
„Síðastliðið eitt og hálft ár höfum við hjónin staðið í ströngu við hönnun og undirbúning á uppboðsvefnum uppbod.is. Vef-
síða þessi verður gangsett á næstu dögum og við væntum mikils af henni," segir Ari Magnússon, eigandi verslunarinnar
Antikmuna. FV-mynd: Geir Ólafsson
Ari Magnússon hjá uppbod.is
Texti: ísak Öm Sigurðsson
Um þessar mundir erum
við að opna nýtt upp-
boðsfyrirtæki á Netinu,
uppbod.is, þar sem stöðugt
verða í gangi spennandi upp-
boð á glæsilegum antik-
vörum og listmunum. Innan
tíðar er svo ætlunin að bæta
við fleiri vöruflokkum," segir
Ari Magnússon, forstjóri og
eigandi Antikmuna, elstu
antikverslunar landsins. „Við
höfum haft það að leiðarljósi
að versla eingöngu með
vandaðar vörur og svo mun
einnig verða á uppboðs-
vefnum."
Ari hefur rekið verslunina
Antikmuni við Klapparstíg
frá árinu 1991, en verslunin
heldur upp á 30 ára afmæli
sitt um þessar mundir. „Segja
má að ég hafi að mörgu leyti
verið alinn upp við sölu
antikmuna, því móðir mín,
Magnea Bergmann, rak
verslunina áður, eða frá árinu
1974,“ segir Ari enn fremur.
Ari er Reykvíkingur í húð
og hár. „Eg ólst upp í Reykja-
vík en þegar ég var 15 ára
fluttist ég til Danmerkur
ásamt móður minni. Þar
stefndi ég að því að mennta
mig frekar í sjómennsku sem
ég var farinn að stunda
heima á Islandi. Eg var þó
ekki nema eitt og hálft ár í
Danmörku áður en ég flutti
aftur heim til Islands og leið
mín lá strax á sjóinn. Arið
1977 útskrifaðist ég úr Stýri-
mannaskólanum. I byrjun árs
1989 gerði ég hlé á
sjómennskunni og fór í
Tækniskólann í útgerðar-
tækninám.“
Ari er í sambúð með Guð-
rúnu Þórisdóttur, grafískum
hönnuði. „Síðastliðið eitt og
hálft ár höfum við hjónin
staðið í ströngu við hönnun
og undirbúning á uppboðs-
vefnum (uppbod.is).
í starfi mínu hef ég
margoft rekið mig á að það er
mikil þörf fyrir þjónustu þar
sem fólk getur komið antik
og betri hlutum í verð á
einfaldan og þægilegan hátt
án þess að vera að fá ókunn-
ugt fólk heim til sín. Það er
því góður kostur að geta
boðið viðskiptavinum upp á
að sjá alfarið um þá hlið mála
og gefa þeim kost á að sýna
og selja hæstbjóðanda á upp-
boðssíðunni. Þar sem það
færist í vöxt að fólk um allan
heim versli á Netinu teljum
við þetta frábæran vettvang
fyrir viðskipti sem þessi. Sú
nýjung að selja antik og aðra
hluti á netuppboði hefur líka
sannað gildi sitt í ýmsum
löndum í kringum okkur.
Uppbod.is mun aðeins
taka til sölu vörur sem
metnar eru af fagfólki okkar.
Við munum þannig útbúa
vörulýsingu sem fólk getur
treyst. Það er auðvelt að
skoða vörurnar sem eru til
sölu á uppbod.is þar sem þær
verða til sýnis í sýningarsal
fyrirtækisins, auk þess sem
hægt er að skoða ljósmyndir
og fá nákvæma lýsingu á
síðunni,“ segir Ari.
Ari hefur yndi af ferða-
lögum og skoðar þá gjarnan
gömul húsgögn og gamlar
byggingar. Lestur góðra
bókmennta, sérstaklega
ævisögu- og sagnfræðirita er
einnig í miklu uppáhaldi hjá
Ara. „Ég hef stundað jóga í
áratugi, fer þessa dagana
reglulega í tæ chi og kung fu
leikfimi og syndi reglulega á
morgnana. Einnig verð ég að
viðurkenna að ég er veikur
fyrir siglingum og draumur-
inn er að geta keypt sér
skútu einhvern tímann í
framtíðinni." 33
138