Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 10
8
MORGUNN
skýri þér frá því, sem ég veit meS vissu, en þú ert auðvitað
alveg sjálfráður, hvort þú tekur það trúanlegt eða ekki.
Vér skulum nú taka hvert atriðið á fætur öðru. En til þess,
að þér verði þau sem ljósust, er þér nauðsynlegt að fá að vita
ofurlitið meira um eðli mannsins en þeir menn vita almennt,
sem hafa ekki aflað sér þekkingar í þeim efnum. Þér hefur
að líkindum verið kennt, að maðurinn sé gæddur einhverju
ódauðlegu, sem menn nefna „sál“, og ætlað er að lifi eftir
dauða líkamans. Ég vildi feginn geta losað þig við þessa reik-
ulu hugmynd, svo að þú gætir skilið, að þótt þetta sé að vissu
leyti satt, þá gera menn sér yfirleitt ekki fyllilega grein fyrir
því, sem um er að ræða. Þú ættir ekki að þurfa að segja sem
svo, að þú vonir að þú hafir ódauðlega sál, heldur, að þú vitir
að þú sért ódauðleg sál; því það er sannleikurinn. Maðurinn
er sál og hefur líkama. Líkaminn er ekki sjálfur maðurinn,
heldur hinn ytri og sýnilegi búningur hans. Dauðinn er í því
fólginn, að vér leggjum af oss slitinn búning, sem vér höfum
haft til að starfa í hér á jörðinni. Hann er því ekki i frekara
skilningi endalok lífsins en það, að vér förum úr yfirhöfninni.
Og þar af leiðandi hefur þú ekki misst ástvin þinn; þú hefur
aðeins misst sjónar á þeim búningnum, sem þú varst vanur
að sjá hann i. En þótt búningurinn sé horfinn, er vinur þinn
ekki frá þér farinn. Og þú elskaðir hann sjálfan, en ekki að-
eins líkamann, sem hann var í.
En, áður en þú getur skilið ástand vinar þíns, verður þú
að skilja, hvað þú ert í raun og veru. Þú verður að reyna að
skilja þau grundvallarsannindi, að þú ert ódauðleg vera,
ódauðleg, sökum þess, að þitt innsta eðli er af guðdómlegum
uppruna, er neisti hins guðdómlega elds. Þú hefur verið til,
áður en þú iklæddist þessum jarðneska líkama, og það á fyrir
þér að liggja að lifa um óteljandi árþúsundir eftir að hann er
orðinn duft eða aska. „Guð skapaði manninn í mynd og lík-
ingu eilífðarinnar“. Þetta er engin ágizkun svona rétt út i
bláinn eða reikul trúarskoðun, heldur vísindaleg sannreynd
eða vissa, eins og þú getur séð, ef þú kynnir þér rit guðspek-
inga, er fjalla um þetta efni. Þetta líf, sem þú lifir nú, er í