Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 47
DULSKYNJANIR
45
mér. Ég varð undrandi, því að ég hafði alls ekki minnst á þetta
við hami. Og þó að ekki væri um annað að ræða en þetta, að
losa mig við þennan leiða kvilla, tel ég mig hafa farið sigurför
á fund Mr. Edwards.“
Og það dásamlegasta við þetta allt saman er það, að báðar
þessar kærleiksríku konur urðu merkilegir huglæknar hér
heima á íslandi og tókst að hjálpa fjölda fólks, eins og skrif-
leg vottorð inargra sjúklinga bera með sér, en þau er að finna
í bókum þeirra: Tveir heimar og Skyggna konan.
Ég hygg að ekki sé á neinn hallað, þótt fullyrt sé, að Harry
Edwards sé frægasti huglæknir í heiminum. Og þótt hann sé
nú kominn yfir áttrætt þá heldur hann ennþá áfram að nota
frábæra hæfileika sína til blessunar meðbræðnim sínum. Þessi
þróttur er vel skiljanlegur, þegar þess er gætt, að í meira en
hálfa öld hafa streymt til hans blessunaróskir og þakklæti frá
sjúku fólki um víða veröld. 1 slíkum hugsunum fellst gífurleg
orka. Meðal hinna konunghollu Breta hefur það vakið mikla
athygli á starfsemi hans, að ýmsir úr konungsfjölskyldunni
brezku hafa til hans leitað. Því það er öllum ljóst, að þetta
fólk hefur átt lcost á því að njóta hjálpar frábærustu manna
læknastéttarinnar. Kóngafólkið nýtur engra sérréttinda hjá
Harrv Edwards. Hann gengur ekki á fund þessa tigna fólks.
Það verður eins og aðrir að koma á lækningastöð hans í Bur-
rows Lea.
Edwards hefur skrifað margar bækur, þar sem hann segir
frá ótal lækningum hyggðum á sérstæðri reynzlu hans. Ed-
wards hefur boðið byrginn efasemdarmönnum með því að
sýna hvað eftir annað, ásamt aðstoðarmönnum sínum, lækn-
ingar á sjúklingum opinberlega í stærstu samkomusölum
Bretlands og annara landa- Það liggur i eðli málsins, að ekki
er hægt á slíkum samkomum að sýna, þegar innvortis mein-
semdir læknast eða sjúkdómar sem lengri tíma tekur að lækna.
Hins vegar hefur liann sýnt hvernig krepptir limir réttast,
krypplingar fá bata, bólgukeppir hverfa og sjónleysi læknast
á samri stund í viðurvist þúsunda áhorfenda. Þá hefur Eid-
wards hvað eftir annað komið fram og sýnt lækningar sínar