Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 67
BÆKUR
65
Þetta samtal leiddi til þess að þeim Sir Hubert og Harold
Sherman kom saman um það að gera tilraunir með hugs-
anaflutning. Ákváðu þeir að „mæla sér mót á hugsviðinu“
meðan leiðangurinn stæði þrisvar í viku á nánar ákveðnum
tímum.
Hér er ekki rúm til að rekja þessar tilraunir nánar, en að-
eins skal vakin athygli á því, að þegar tilraununum lauk og
samanburður var gerður á dagbók Wilkins og því, sem Har-
old Sherman hafði ritað niður kom í ljós, að af þeim liundr-
uðum hugboða, sem Sherman ritaði niður, reyndust um 70 af
hundraði vera rétt.
Síðan þessar tilraunir fóru fram, en þær voru skoðaðar
brautryðjendastarf á þeim dögum, hefur áhugi bæði leik-
manna og vísindamanna á þessum efnum öllum sífellt auk-
izt. Eins og við höfum sjálf séð hér í sjónvarpinu okkar er nú
orðið algengt að gerðir séu kynningarþættir í fjölmiðlum þar
sem lýst er margs konar fyrirbærum, sem hafa verið sönnuð
og staðfest svo að óyggjandi er. Þessi mál verða ekki lengur
afgreidd með axlaypptingum eða fyrirlitningu ófróðra manna,
sem vaða í þeirri villu, að það sem þeir vita ekki eða skilja
geti ekki átt sér stað. Vísindastofnanir víða um heim gera nú
í sífellt vaxandi mæli tilraunir til rannsókna á hinum ótrú-
legu möguleikum mannsandans. Það má því segja, að loksins
sé farið að sinna rannsóknum þeim á mannshuganum, sem
Sir Hubert Wilkins kallaði „stórkostlegasta verkefni mann-
kynsins“ en Einar H. Kvaran skáld „Mikilvægasta málið í
heimi“.
Ástæðan er augljós: Við erum farin að gera okkur grein
fyrir því, að við getum ekki lengur fundið fullkomið öryggi
eða fullnægingu í veraldlegum gæðum einum saman og það
dylst engum lengur að þessi fimm skilningarvit okkar megna
ekki að skýra nema tiltölulega litið af því, sem fyrir okkur
ber í þessum heimi. Enda vita það allir, að mörg dýr hafa á
ýmsum sviðum miklu fullkomnari skilningarvit en maður-
inn. Það er því i meira lagi barnalegt, að lialda, að skynjun
venjulegs manns veiti fullkomna mynd af raunveruleikanum.
5