Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 71
BÆKUR
69
sem séra E. A. Stutton gerði með hinni brezku hátíðarútgáfu
þessarar bókar, sem kom út 29. janúar 1938, og er hann mjög
þarfur þeim íslenzkum lesendum sem lítið vita um Sweden-
horg.
1 upphafi ritverks síns Arcana Coelestia skrifar Sweden-
horg:
Fyrir guðlega náð hefur mér veitzt nú um nokkurra ára
bil að vera stöðuglega og óslitið í samfélagi við anda og engla,
þar sem ég heyri þá tala og ræddi við þá á móti. Á þennan
hátt hefur mér leyfzt að sjá og heyra undursamlega hluti, er
eiga sér stað í öðru lífi, og sem ekki hafa fyrr komizt til vit-
undar eða gengið inn í hugsanir nokkurs lifandi manns vor
á meðal. Eg hef verið fræddur þar um efni er varða hinar
ýmsu tegundir anda, ástand sálarinnar eftir dauðann, hel,
eða hið sorglega ástand hinna trúlausu, himnana, eða hið
ólýsanlega hamingjuástand hinna trúuðu, og þó sérstaklega
varðandi trúarlærdómana, sem játaðir eru og viðurkenndir
um gjörvöll ríki himnanna í heild sinni“. (Þýðing Sv. Ól.).
Kenningar Swedenhorgs eru víða mjög heillandi og fagrar,
eins og þessi bók ber vitni. Til þess að átta okkur á því skul-
um við til dæmis spyrja hann um það, hvernig þetta himna-
ríki, sem honum verður svo tíðrætt um, sé. (1 svörum hans
er stuðzt við fleiri rit en það sem hér er sérstaklega til um-
ræðu).
Jú, það er stöðugt ástand kærleika í verki. Kærleiksríkt líf
nær út yfir gröf og dauða. Enda er dauðinn einungis fram-
hald lífsins. Hann táknar hvorki umbreytingu né endalok
núverandi tilveru. Og Swedenhorg lætur sér ekki nægja þess-
ar fullyrðingar, lieldui’ lýsir lífinu eftir dauðann í einstökum
atriðum:
„Það líða aðeins nokkrir dagar eftir dauða líkamans þang-
að til maðurinn fer inn í annan heim“, segir hann. Þegar
maðurinn deyr líkamsdauða er hann leiddur inn i visst ástand,
sem er mitt á milli svefns og vöku, en í þessu ástandi finnst
honum hann samt vera glaðvakandi. öll skilningarvit hans
eru eins næm og þegar hann var vakandi i líkama sínum. Og