Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 44
42
MORGUNN
þrá til þess að geta dregið úr þjáningum mannanna. Hann þarf
með öðrum orðum að vera kærleiksríkur, þvi kærleikurinn er
sterkasta aflið i alheiminum. Ég veit að þið góðir hlustendur
misskiljið ekki orð min svo, að þið haldið að ég sé andvígur
trúarhrögðum, því fer fjarri, ég ber virðingu fyrir trúarhrögð-
um heimsins. Trúarbrögðin eru nauðsynlegt stig á þroskabraut
margra manna. Hins vegar er ég algjörlega andvígur þeim
hroka, sem lýsir sér í því, að halda, að einhver einstök trúar-
brögð hafi einskonar einkaumboð frá almættinu og séu þvi
öllum öðrurn æðri. Mönnum á að vera fullkomlega frjálst að
velja þær hrautir sem hverjum einum hentar á leiðinni löngu
heim t.il föðurhúsanna. Sannleikurinn er öllum trúarhrögðum
æðri.
En hverfum nú frá persónulegum lífsviðhorfum mínum og
að sálrænum lækningum i nútímanum eða huglækningum,
eins og þær eru oftast kallaðar hér á landi.
Það er kunnara en frá þurfi að segja, að huglækningar hafa
verið stundaðar hér á landi um alllangt skeið, með, að þvi er
virðist, góðum árangri- Nægir i þessu sambandi að minna á
nöfn eins og Ólaf Tryggvason, Einar hónda á Einarsstöðum,
Margréti frá öxnafelli, Guðrún Guðmundsdóttur frá Berja-
nesi, Jóninu Magnúsdóttur og Ragnhildi Gottskálsdóttur að
ógleymdri völvu Suðurnesja, Unu i Garði, og er þetta engan
veginn ta;mandi upptalning. Allt eru jietta þjóðkunnir hug-
læknar. Við þetta má svo bæta nöfnum kuunra erlendra hug-
lækna, sem komið hafa hingað til lands á vegum Sálarraun-
sóknarfélags Islands, sumir hvað eftir annað að heiðni sjúkl-
inga, eins og frú Joan Reid, og nú eru hér staddar frú Eileen
Hambling og dóttir hennar Lilanthea í sömu erindum í fjórða
sinn.
Það er ekki ætlun min að ræða í þessu erindi íslenzka hug-
lækna og árangur þeirra sérstaklega. Það er of langt mál. Ég
kaus fremur að segja þvi ítarlegar frá frægasta huglækni sem
nú er uppi, Harry Edwards, í Lundúnum.
En til þess ætla ég að fá aðstoð tveggja fyrmefndra íslenzkra
huglækna, þeirra Guðrúnar frá Berjanesi og Margrétar frá