Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 25
TIL SYRGJANDI MANNA . .
23
eins og hér. Eins og kunnugt er hafa mörg börn gaman af
því að „látast vera“ frægar söguhetjur eða foringjar í hinum
furðulegustu æfintýrum. 1 hinum andlega heimi er efnið
margfalt smágjörvara, svo að hver hugsun verður sýnileg og
sést í ákveSnu gerfi. Þegar börnin „látast vera“ einhver sögu-
hetjan, þá verða þau eins að útlitum og hún hefur hlotið að
vera að þeirra dómi. Og, ef þau vilja reisa einhverja töfra-
höllina, þá geta þau það með hugsunum sínum einum. Og,
ef þau óska sér heilla hersveita, er þau eigi yfir að ráða, þá
stendur og ekki fremur á þeim. Meðal hinna látnu eru börn-
in alltaf glöð og kát og jafnvel oft og tíðum frá sér numin
af fögnuði.
Og börn, sem eru gædd sérstökum gáfum eða tilhneiging-
um, til dæmis þau, sem hafa meðfædda trúartilhneigingu,
finna æfinlega í öðrum heimi það, sem þau þrá. Englar og
heilagir menn og heilagar konur, sem þau hafa lesið eða
heyrt talað um, em sum hver allt annað en hugmynda-
smíði trúaðra manna. Þeir, sem trúa á þau og þurfa að ein-
hverju leyti á hjálp eða handleiðslu þeirra að halda, komast
að raun um, að þau em ekki einungis eins vemleg og þeir
sjálfir, heldur og einnig miklu kærleiksríkari og dýrlegri en
þeir höfðu nokkurn tíma getað gert sér í hugarlund. Börn,
sem þrá að sjá guð í líkamlegri mynd, verða og heldur ekki
fyrir vonbrigðum, því að hinir ástúðlegustu fræðarar kenna
þeim að sjá guð í öllum hlutum, svo að hver, sem lifir og
þjónar jafnvel hinum lítilmótlegustu, lifir og þjónar sjálfum
guði. Mörg börn eru svo gerð, að þau vilja oft hafa eitthvað
nytsamt fyrir stafni. Þau verða því oft til að hjálpa þeim og
gleðja þá, sem við sorg eða bág kjör eiga að húa, og læra til
fullnustu, hvað felst í hinum fögru orðum: „Það, sem þér
gerðuð einum af þessum minnstu braiðrum mínum, það hafið
þér og mér gjört“.
En börnin, sem deyja kornung, áður en þau hafa vit á að
leika sér? Þú þarft ekki að bera neinn kvíðboga fyrir þeim.
Þær eru margar mæðurnar og ástrikar í öðrum heimi, sem
þrá að ganga þeim í móðurstað. En kornung börn dvelja að