Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 17
TIL SYRGJANDI MANNA . .
15
æðra heim, getum vér munað það, sem hefur gerzt hér, því
að þegar vér festum svefninn, stigum vér út úr líkamanum,
og er þá sem vér vörpum af oss þungu fargi. En i sama bili
og vér vöknum, tökum vér það á oss aftur, og er þá sem
drungi leggist yfir meðvitund vora, svo að vér gleymum því,
sem fyrir oss hefur borið á æðra tilverustigi. Ef vér viljum
skýra ástvini vorum frá einhverju, sem oss liggur á hjarta,
þurfum vér ekki annað en gera oss ljósa grein fyrir því, rétt
áður en vér sofnum. Það er þá áreiðanlegt, að vér skýrum
honum frá því undir eins og vér finnum hann. Stundum vilj-
um vér, ef til vill, láta hann vita um eitthvað, sem að þessu
lífi lýtur eða leita ráða hjá honum. En þá vantar, að vér get-
um munað það, sem oss fer á milli. En, þótt vér munum ekki
úrskurð hans eða ráðleggingar, þá er oft, að vér vöknum með
ákveðna skoðun á því málefni, sem um er að ræða. Oss finnst
þá, að vér höfum fengið óljóst hugboð um álit hans, og það
má þá jafnan reiða sig á, að það er rétt. Hins vegar ættum
vér sem minnst að ráðfæra oss við vini vora á æðra tilveru-
stigi• því eins og síðar mun sagt verða, er það ekki æskilegt að
draga þá aftur inn í þá lífsbaráttu og þær áhyggjur, sem þeir
eru nú lausir við.
En þetta kemur oss til að spyrja, hvaða störf þeir hafi með
höndum og hvers konar lifi þeir lifi. Störf manna og líðun
eru mjög svo mismunandi. En það má með sanni segja, að
hartnær allir lifa þeir margfalt sælla lífi en hér í heimi. 1
helgiriti einu gömlu er sagt meðal annars: „Sálir réttlátra
manna eru í hendi Guðs, og þangað nær þeim engin þraut
né mæða. Hinum fávísu virðast þeir deyja, og héðanför þeirra
vera hin mesta ógæfa og andlát þeirra algjör tortíming; en
þeir lifa i friði“. Vér verðum að varpa öllum heimskulegum
kenningum og úreltum fyrir borð. Menn þjóta ekki á dauða-
stundinni upp í neinn undrahiminn né ofan í fáránlegt hel-
víti. Og í raun og veru er ekkert helvíti til í venjulegri merk-
ingu þess orðs, og meira að segja, ekki nokkurs staðar helvíti
í neinni merkingu, nema það, sem menn skapa sér sjálfir. Þú
mátt ekki gleyma því, að dauðinn gerir enga breytingu á oss.