Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 38
36
MORGUNN
í fimmta lagi: Sérstök fyrirhyggja fyrir öllu lifandi lýsir
sér í fyrirbrigÖum, eins og hinum furÖulegu einkennum og
áhrifum litninganna.
Litningamir em svo smáir, að ef hægt væri að hugsa sér
alla þá litninga, sem hafa áhrif á mannlegt líf, á einum stað,
myndu þeir ekki fylla fingurbjörg. Samt fyrirfinnast þeir í
hverri einustu lifandi frumu í dýrarikinu og jurtaríkinu; og i
þeim em fólgnir erfðaberarnir, þar sem kostir eða gallar for-
feðranna vaka og varpa ljósi eða skugga á braut einstaklings-
ins eftir kyngæðum foreldra hans.
Hér er það, sem þróunin i rauninni hefst — í fmmunni,
þessari heild, sem ber í sér litningana; að hinn ótrúlega smái
litningur skuli algjörlega stjórna lífi á jörðinni er dæmi um
djúpan skilning og fyrirhyggju, sem aðeins gæti ótt upptök
sín hjá skapandi skynsemigæddri veru; aðrar kenningar duga
þar ekki til.
f sjötta lagi: Þegar á það er litið hversu hyggilega á öllu
er haldiS í náttúrunni, neyÖumsl við til dS gera okkur Ijóst,
aS einungis ómælanleg vizka gæti hafa undirbúiS og skipulagt
svo frábœra ráSdeild.
Fyrir mörgum árum var sérstakri tegund af kaktusi plant-
að í Ástraliu í því skyni, að mynda með honum vemdargirð-
ingar. Þar eð þessi kaktustegund átti enga óvini meðal skor-
dýra í Ástralíu, útbreiddist hann með gífurlegum hraða; hélt
þessu áfram, þangað til kaktusgróðurinn þakti svæði, sem var
á stærð við allt England; kaktusinn tók jafnvel að ryðja fólki
úr borgmn og þorpum og eyðileggja búskap bændanna. Skor-
dýrafræðingar leituðu um allan heim að vörn gegn þessari
voðaplágu. Að lokum tókst þeim að hafa uppi á skordýri, sem
eingöngu lifir á kaktusi og ekki lagði sér annað til munns.
Skordýr þetta frjóvgaðist einnig mjög ört; ennfremur kom í
ljós, að það átti engan óvin i Ástraliu. Það var flutt til lands-
ins og brátt rak að þvi, að dýrið sigraði jurtina og nú hefur
kaktusplágan hjaðnað.
Slíku jafnvægi hefur verið séð fyrir alls staðar í náttúr-
unni. Hvers vegna hafa skordýrin, sem auka kyn sitt með