Morgunn


Morgunn - 01.06.1977, Page 32

Morgunn - 01.06.1977, Page 32
30 MORGUNN ins sáu það leysast upp í bylgjukvik og ljós á rannsóknarstof- um sínum. Efnið varð „andi“, tónlist, ósýnilegt, ósnertanlegt og ómótanlegt, nema með huganum. — Guð er andi og þeir, sem tilbiðja hann, eiga að tilbiðja hann í anda. — Var þá ekki Guð allt og allt Guð? Hví þá að æðrast í stað þess að fagna? Hér finnast einnig frásagnir af hinum furðu- legu örlagaflækjum, sem lífið býr einstaklingum og hópum, ótakanlegum vandamálum, sem Ólafi tókst oft að aðstoða við að leysa. Einnig finnast sagnir af furðulegum lækningum, sem fólk hlaut hjá Ólafi og vottfesti með undirskrift sinni. Slíkt vekur sjúkum vonir um hjálp í þeirra neyð. En Ólafur gefur Guði dýrðina og hann tók ógjama sjúka til meðferðar, nema læknar hefðu gefizt upp við lækningu þeirra. Ólafi var vel ljós sú ábyrgð, sem hvílir á þeim, er skrifa. Hans hlutverk var að vinna óskilorðsbundið með hinum já- kvæðu öflum lífsins. Og þó hann skelfdist oft grimmd og fá- vitaskap samtíðar sinnar, hann lifði m. a. tvær heimsstyrj- aldir, þá missti hann aldrei tni á manrdnn og framtíð hans á jörðinni. Harm trúði því, að þrótt fyrir allt væri mannkynið á þroskabraut, og hann vann hverja stund að því, að svo mætti verða. 1 bókinni Hinn hvíti galdur fjallar Ólafur á einum stað um skáldsögu, er þá var á dagskrá. Þar kemst hann svo að orði: „Þegar öll kurl koma til grafar er meira af gæðum í veröld- inni en vonzku, meira af fegurð í heiminum en ljótleik, meira af sannindum í tilverunni en ósannindum. Sú skáldsaga, sem lýsir fegurð og manngöfgi, er því engu síður „raunsæ“, engu síður „hlutlæg rannsókn“ en greinargerð höfunda í skáldsögu- formi, sem greina eðlisgerð mannsins í gegnum hjúp siðfágun- ar og menntunar sem „fordild, nautnasýki, ragmennsku og flærð“ og leitast við að „tæta manninn sundur“. Þess vegna skal eilífðarvissa, ímyndunarafl og fegurðarskyn ráða mestu um samningu skáldsagna. Það mun greiðfærasta leiðin til að bjarga þeirri „tvífættu tegund, sem breytir auðæfum jarðar í vetnissprengjur og geislavirkt úrfelli, meðan börn svelta."

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.