Morgunn - 01.06.1977, Síða 43
DULSKYNJANIR
41
Til þess er það of flókið mál. En ég mun gera nánari grein
fyrir því annars staðar.
Það nægir að minna hér á það, að sálrænar lækningar hafa
verið stundaðar frá alda öðli hjá þjóðum hinna fomu menn-
ingatímabila. Þessi fornu vísindi voru t. d- stunduð í Kina til
forna, en Indverjar eiga heiðurinn af því að hafa varðveitt í
hókmenntum sínum þessa þekkingu, sem þeir hafa rikulega
notfært sér fram á þennan dag. Þaðan barst hún til Egypta-
lands, landanm við Miðjarðarhafsbotn og að lokum til Grikk-
lands, eins og bókmenntír þessara þjóða bera með sér. Vestur-
landabúar geta i sinni viðlesnustu bók, Biblíunni, fundið þessa
ótal dæmi i báðum testamentum. Trúaðir menn, sem ekkert
botnuðu í þessu fundu upp orðið kraftaverk, sem þeir telja af
einhverjum undarlegum ástæðum, að ekki hafi getað gerst
nema fyrir 2000 ámm.
En þau halda áfram að gerast, þrátt fyrir þá trú, og gerast
meira að segja á hverjum degi um viða veröld. Með orðinu
kraftaverk er vitanlega átt við, að eitthvað yfimáttúmlegt sé
á ferðinni, og þá að þakka heitri trú á kenningar kirkjunnar.
Þessi einokun á svonefndum kraftaverkum gerði rómversku
kirkjuna að auðugasta og voldugasta stórveldi miðalda á Vest-
urlöndum. En nú er það bersýnilegt, að þessi dásamlegu fyrir-
bæri standa ekki í neinu sambandi við trúarbrögð. Hér er
aðeins að verki eitt hinna miklu lögmála lífsins, sem við
þurfum að beita vitsmunum okkar til að skilja. Með sama
hætti og við rannsökum náttúrulögmálin-
Það er ekkert yfirnáttúmlegt við sálrænar lækningar, þótt
sumir sem við þær fást tengi slika hæfileika sina trú sinni, og
lækni þvi fólk kirkjudeild sinni til dýrðar. Þeir græðarar mann-
legra meina, sem beitt hafa sálrænum aðferðum með góðum ár-
angri hafa lilheyrt hinum ólíkustu trúarbrögðum eða jafnvel
haft skoðanir, sem á vesturlöndum væiai dæmdar algjört trú-
leysi og guðleysi. Trúarbrögð eru mannanna verk, en lögmál
h'fsins láta sig þau engu skipta. Máttur til sálrænna lækninga
býr í hverjum manni, sem til hefur að bera góðleik og einlæga