Morgunn - 01.06.1977, Side 50
48
MORGUNN
greinilega merktur „Burrows Lea“ bíður á brautarstöðinni
Doi'king North til þess að taka við þeim sjúklingum, sem koma
með lestinni. Og hann skilar þeim aftur þangað, þegar lækn-
ingafundinum er lokið. Ýmsir sjúklingar koma að sjálfsögðu
i bíl eða sjá sér á annan hátt farborða-
Fjórir huglæknar starfa við þessa stofnun auk Edwards
sjálfs. Sitja þau öll fimm lækningafundina. Á þeim fyllast þau
öll því óbilandi trausti, sem hin langa reynzla Edwards hefur
skapað. Hann hefur allt frá upphafi verið eins klæddur við
lækningar sínar: á skyrtunni fráhnepptri í hálsinn.
Þegar hann framkvæmir lækningar sínar er haxrn jafnan
með lokuð augun og bíður þess að krafturinn gangi út frá
honum og lækningaundrið gerist. Ekki er að sjá að þetta sé
honum neitt erfiði. Hann leggur bara hendur yfir hinn sjúka
og rær dálítið í sætinu fram og aftur. Vinur hans, Maurice
Barbanell ritstjóri, hefur lýst þessu fallega. Hann hefur sagt:
„Að horfa á hann við þetta starf er að sjá sjálfan kærleikann
holdi klæddan.“
Þegar hann byrjaði starfið var hann svo illa að sér í lækna-
máli, að hann skiidi oft ekki sjúklingana, þegar þeir voru að
lýsa veikindum sínum og varð því að hafa orðabók við hönd-
ina. En nú, eftir að hafa rannsakað sjúkdóma, og rætt við
sjúklinga í tugþúsundatali, er hann orðinn svo vel að sér í öllu
smáu og stóru, sem líkama mannsins snertir og samband sálar
og líkama, að þar munu fáir standa honum á sporði-
Harry Edwards ver nokkrum liluta tíma síns í þágu Sam-
taka huglœkna, því hann er forseti þess félags. Hhi mikla
efling þess félagsskapar er honum áreiðanlega mest að þakka.
Félagsmenn munu nú vera yfir 5700 manns. Þessi félagsskap-
ur, sem nú hefur starfað í 19 ár, er á engan hátt bundinn við
ákveðnar trúarskoðanir. Flann hefur nú hlotið ákveðna viður-
kenningu, þrátt fyrir það að I.æknafélagið brezka sýndi hon-
um nokkra andstöðu í fyrstu.
Þessi viðurkenning fékkst, þegar þess var óskað, að stjómir
sjúkrahúsa í Bretlandi veittu leyfi til þesss, að huglæknar