Morgunn - 01.06.1977, Blaðsíða 51
DULSKYNJANIR
49
mættu vitja þeirra sjúklinga, sem þess óskuðu, enda kæmi þar
til samþykki hlutaðeigandi læknis.
Nú er svo komið að meira en 500 sjúkrahús eða um 80%
leyfa að huglæknar viltji þar sjúklinga með þessum skilyrð-
um. Það er gott til þess að vita, að um kvartanir eða árekstra
hefur ekld verið að ræða.
Þetta er auðvitað það sem koma skal. Slíkt heillavænlegt
samstarf lækna og sálrænna manna er smám saman að aukast
í heiminum, þótt hægt fari. I Brasilíu er það þannig einnig
orðið mjög algengt og reyndar miklu nánara viða en í Bret-
landi. Ber að fagna þessu- Því hvaða læknir getur með góðri
samvizku hafnað samstarfi við fólk, sem hefur sannað með
verkum sínum að það getur læknað sjúkdóma fyrir atbeina
sálrænna krafta, enda þótt þeir enn séu ekki viðurkenndir af
læknavísindunum? Er það ekki aðalatriðið að sjúklingnum
batni? Sannreyndirnar tala sínu máli, og það þýðir ekki leng-
ur að loka augunum fyrir þeim.
Ég vil að lokum geta þess að aðalheimildarmaður minn
um Harry Edwards er vinur hans Maurice Barbanell, rit-
stjóri sem fyrstur manna varð til þess að skrifa um stórkost-
lega hæfileika Edwards og vekja þannig athygli á honum.
Sjálfur er Barbanell stórmerkilegur miðill, sem mikið hefur
verið skrifað um og rannsakaður var sérstaklega af frægasta
blaðamanni Bretlands Hannen Swaffer. Leiddi það til þess að
sá frægi maður varð sannfærður spiritisti. Ég var svo heppinn
að kynnast Maurice Barbanell persónulega fyrir nokkrum ár-
um hér heima á Islandi og varð ég við það nokkurs vísari.
4