Morgunn


Morgunn - 01.06.1977, Page 68

Morgunn - 01.06.1977, Page 68
66 MORGUNN Mikilvægi þessarar bráðskemmtilegu bókar liggur ekki ein- ungis í því, að höfundur býr yfir óveujulegum sálrænum hæfileikum, sem hafa haft umbyltandi áhrif á líf hans og hugsunarhátt, heldur er hann vitmaður, sem dregur réttar ályktanir af því sem hann verður var við og kynnist. Þannig segir hann til dæmis: „Við erum það sem við hugsum. Hugs- unin lýtur mikilvægu lögmáli. Líkur sækir líkan heim, eða sækjast sér um líkir. Þannig leitar kærleikurinn kærleikans og hatrið hatursins“. Hér orðar hann grundvailarlögmálið, sem ræður líðan okk- ar í næsta lífi. í þessum heimi tekst að vísu um stund að leyna hugarfari sínu með aðstoð hræsninnar, en það er ekki hægt í þeim heimi, sem við dveljumst í eftir svokallaðan dauða, því þar er ókleift að leyna lengur hugsunum sínum og þar dylst því engum hver maður er og innan um hverja maður á heima. Þannig er maðurinn með hugsunum símun og athöfnum sinnar eigin gæfu smiður. Eða „eins og maður- inn sáir, svo mun hann og uppskera“. Höfundi bókarinnar DULARMÖGN HUGANS nægir ekki að njóta þeirra miklu hæfileika sem hann býr yfir. Hann vill deila þeim með okkur lesendum sínum og hefur trú á því, að við getum einnig haft persónulegt gagn af aðferðum hans og reynslu. Á einum stað kemst hann svo að orði: „Ef ég segi ykkur, að þið megið vænta góðs árangurs, svo framarlega sem þið beitið vissri hugtækni samvizkusamlega, megið þið reiða ykkur á, að þið munuð þroska hæfni ykkar eins og ég. Sú aðferð sem ég nota ætti alveg eins að henta ykkur“. Hér er þvi ekki einungis um að ræða endurminningar gáfaðs manns, heldm- beinlínis kennslubók í mikilvægri andlegri þjálfun. Og skemmtilegri kennslubók hef ég aldrei lesið. Mikill kostur er það á bók, sem inniheldur jafngífurlega mikinn fróðleik og þessi góða bók, að höfundur dregur sam- an í lok hvers kafla innihald hans. Þetta flýtir fyrir því að átta sig á kjarna hennar við endurlestur. En ég spái því, að fáir ljúki svo lestri þessarar bókar, að þeir finni ekki til þess að nauðsynlegt sé að átta sig betur á ýmsu, sem þar er sagt. i

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.