Morgunn


Morgunn - 01.06.1977, Page 70

Morgunn - 01.06.1977, Page 70
68 MORGUNN steinafræðingur, líffærafræðingur, liffræðingur og sérfræð- ingur í málmvinnslu. Auk þess var hann uppfinningamaður og hafði hugboð um margar nútímauppgötvanir. 1 einu rita sinna, sem heitir Principia, kom hann fram með kenningar um stjörnuþoku, sextiu og tveim árum en La Place og tuttugu og einu ári áður en Kant birtu skoðanir sínar. Nægir það eitt raunar til þess að tryggja honum tignarsæti í ríki vísinda og heimspeld. Og þó er ekki enn allt upp talið. Þessi merkilegi maður var einnig ófreskur. Árið 1759 var hann staddur í Gautaborg og sá þá fyrir sér stórbruna, sem á sama tíma gerð- ist í Stokkhólmi i 450 km fjarlægð. Hann lýsti bruna þessum í einstökum atriðum, hverju húsi sem brann fyrir sig og sendi borgarstjóra Gautaborgar þegar skýrslu um atburðinn. Þótti þetta, eins og nærri má geta, allkynlegt. En þó óx undrun manna enn meir, þegar í ljós kom við rannsókn síðar, að lýs- ing hans var algjörlega í hverju atriði sannleikanum sam- kvæmt. Sjálfur Kant rannsakaði mál þetta sérstaklega, því liann átti erfitt með að trúa þessu og ferðaðist i því skyni til Svíþjóðar, þar sem hann kynnti sér öll gögn málsins. En þetta var svo kyrfilega staðfest af ótal vitnum, að hann taldi það fullsannað. 1 nýjustu útgáfu brezku alfræðaorðabókarinnar er Svíanum Emanuel Swedenborg ekki veitt minna rúm en sjálfum Ein- stein. Enda var Swedenborg, sökum ótrúlegrar þekkingar, oft nefndur „Aristoteles Norðurlanda“. En Swedenborg fór ekki aðeins sálförum milli borga til þess að horfa á stórbruna, þegar likami hans var staddur víðsfjarri, heldur taldi hann sig fjórum sinnum hafa ferðazt inn í hinn andlega heim og skrifaði langar og itarlegar lýsingar á lífinu eftir dauðann í rit sitt Leyndardómar himna og fleiri bækur, sem eru heillandi lestur. Ein þessara bóka er hér komin á íslenzku i þýöðingu Sveins Ölafssonar og stendur þar á titilsíðu: HIN NÝ.TA JERÚSAL- EM OG HIMNESK KENNING HENNAR samkvæmt þvi sem opinberað hefur verið frá himnum. En þessi bók kom fyrst út í Lundúnum árið 1758. Fylgir hér með formáli sá,

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.