Morgunn


Morgunn - 01.06.1977, Síða 73

Morgunn - 01.06.1977, Síða 73
BÆK.UR 71 kristnir eða ekki. Um þelta segir hann: „Það finnst ekki staf- ur um það í Ritningunni, að gera eigi mun á persónum eða þjóðum, þar eð englarnir láta sig engu skipta persónuleika Abrahams, fsaks og Jakobs, og sjá engan mun á Gyðingum og öðrum þjóðum, annan en mismunandi kosti einstakling- anna“. Swedenborg segir einnig, að öll börn séu send til himna, hvort sem þau séu skírð eða ekki, og þar sé þeim bjúkrað og þau alin upp af englum. í þessu óskalandi bjartans er kærleikurinn takmarkalaus, segir Swedenborg. Enda er hér engin tilfinning tima, beldur einungis breytingar á ástandi. Árstíðaskiptin á þessum guð- dómlega stað fara eftir tilfinningu hjartans. Sé maður glaður í hjarta er vor og dögun; sé maður hryggur er vetur og nótt. Þá er ekki heldur um að ræða fjarlægðir eða rúm í venjuleg- um skilningi. „Þegar maður færist frá einum stað til annars er hann fljótari í ferðum ef hann óskar að fara þangað, en seinni ef hann er tregur til þess“, segir Swedenborg. Kærleik- urinn er sá öxull sem allt snýst um í þessari paradis Sweden- borgs. Aldur og elli eru úr sögunni. Þeir sem dáið hafa þreytt- ir og útslitnir en lifað í kærleika til náunga síns standa aftur i fullum blóma æsku og fegurðar, sem engin orð fá lýst. Já, þetta eru aðeins örfá sýnishorn úr lýsingu þessa undar- lega manns á stað sem hann segist sjálfur hafa heimsótt, og getur hver haldið um það sem honum gott þykir. Slíkt frjálslyndi í trúmálum var blátt áfram andleg sprengja á átjándu öld, enda lokuðu flestir hug sínum og hjarta fyrir þessum skoðunum. Trúarbrögð sem leyfðu slikt umburðar- lyndi, að jafnvel Búddhatrúarmönnum, Múhameðstrúarmönn- um og Gyðingum var hleypt inn í himnaríki, voru ríkjandi trúarskoðunum blátt áfram stórhættuleg. En Swedenborg bjó yfir óttaleysi þess, sem telur sig þjón sannleikans. Hann dreifði afritum af verkum sínum um meginlandið og óskaði eftir umsögnum um þau. „En ekki ein einasta rödd svaraði“, eins og hann komst að orði. Var þetta þá allt unnið fyrir gýg? Nei. Það voru menn uppi á þessu tímabili, sem töldu fulla
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.