Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 30
sem brátt sameinuðust í einn. Dimmrauðir ljósglampar sáust
við og við lýsa gegnum þykknið og þá sá eg hver fylkingar vopn-
aðra manna færðust með skýinu á sjó og landi í átt til Ameríku,
sem hulin var skýjaþykkni. Ósljóst sá ég þessa herskara leggja
landið í auðn, brenna og sprengja í loft upp borgir og bæi. Ég
heyrði fallbyssudrunur, sverðaglamur og í gegnum allt þetta
hróp milljónanna, sem veinuðu í dauðans angist. Þá heyrði ég
aftir hinar dularfullu rödd segja: „Sonur lýðveldisins, líttu á.“
Þegar röddin var þögnuð, blés skuggaengillinn enn einn tón í
lúðurinn, langan og ógnvekjandi.
í sömu svifum barst birta að ofan sem frá þúsund sólum og
sundraði skýinu dimma, sem hulið hafði Ameríku. Um leið
kom engillinn, sem enn bar á höfði sér hið skínandi orð „Sam-
bandsríkið“, af skýjum ofan ásamt herskara bjartra anda og
bar þjóðfánann í annarri hendi, en sverð í hinni. Samstundis
fylktu hinir björtu andar sér í lið með amerísku þjóðinni, sem
virtist að þrotum komin, og óx henni við það kjarkur og ný sókn
var hafin. Gegnum vopnagnýinn heyrði ég aftur til hinnar dul-
arfullu raddar, sem sagði: „Sonur lýðvcldisins, líttu á.“ Nú
dreypti engill skuggans í síðasta sinn vatni úr hafinu yfir megin-
land Ameríku og hörfaði þá hið dimma ský aftur frá landinu
sömu leið og það hafði komið ásamt öllum herfylkingunum,
skiljandi amerísku þjóðina eftir, sigri fagnandi.
Enn á ný sá ég rísa borgir og bæi og ég sá engilinn bjarta setja
hið bláa tákn friðarins niður á meðal þjóðarinnar um leið og
hann kallaði hárri röddu: „Meðan stjörnurnar standa og himn-
arnir senda dögg niður til jarðarinnar, mun Sambandsríkið vara
við lýði.“ Og hann tók af enni sér hina lýsandi kórónu þar sem
á var ritað orðið „Sambandsríki“ og lét hana ofan á þjóðfán-
ann, en þjóðinn féll á kné og sagði: „Amen“.
Smám saman leystist sýnin upp og hvarf og að síðustu sá ég
ekki annað eftir en þokumökkinn hvíta, sem ég hafði séð mynd-
ast í fyrstu. Loks hvarf hann einnig og sá ég þá aftur standa
andspænis mér hina dularfullu kvenveru og sagði hún með
sömu rödd og ég fyrr hafði heyrt: „Sonur lýðveldisins, þú hefur
séð táknmynd af því, sem koma skal. Þrjár miklar ógnir munu
28
MORGUNN