Morgunn - 01.06.1987, Qupperneq 64
PETER ANDERSSON OG GORDON ADAMS
Hugsanaflutningur - P. S. í
Hugsanaflutningur í sundskýlum einum klæða
TELEPATHY, hugsanaflutningur, reynist öllu erfiðari við-
fangs en skyggnigáfa. Má það augljóst vera, er maður gerir sér
ljóst, að fyrra atriðið verður að byggja á samstillingu tveggja
mannshuga að einu og sömu hugsun eða sömu huglægu
myndum, en hið síðara byggir aðeins á hugsýnum einnar
mannssálar. Til þess að koma á hugsanaflutningi á milli manna
verður ekki betur séð en að þar verði sú regla að ráða, að að-
standendur búi yfir samhygð í afstöðu sinni hvort til annars eða
þá að annar þeirra sé haldinn sérlega sterkum áhrifamætti. Við-
takandi virðist þá heldur ekki mega vera gagntekinn af öðrum
umhugsunarefnum.
Oft munum við telja okkur hafa lifað þau augnablik, er ein-
hver, sem okkur er nákominn eða einhver, sem á þeirri stundu
virðist samstilltur okkur á einhverja lund, hafði hið sama og við
í huga áður en það var orðað. Þarna virðist hugsanaflutingur
iðulega hafa átt sér stað, án nokkurrar viðleitni af okkar hálfu
til þess að vera að reyna hann. En það er annað mál og óað-
gengilegra að skapa skilyrði til hugsanaflutnings, þannig að
unnt sé að fylgjast með honum af gagnrýni og skrá niðurstöð-
urnar af nákvæmni.
Það þarf því engan að undra, þótt sú hafi orðið reyndin á, að
margar af bestu rannsóknum á þessu sviði skuli einmitt hafa
verið unnar af vísindamönnum, sem sjálfir tóku þátt í tilraun-
unum og nutu þar aðstoðar fólks, sem þeir stóðu í nánum
tengslum við. Líkur benda til þess, að sá „sjálfstilraunamanna11,
62
MORGUNN