Morgunn - 01.06.1987, Blaðsíða 67
tilvikum ótrúlega góðar eftirlíkingar af þeim myndum, sem
Sinclair hafði haft í huga, en voru ekki svo nauðalíkar, að hún
gæti alltaf gert sér grein fyrir því, hvað þær ættu að sýna.
Svipaðar tilraunir gerði breski dulsálarfræðingurinn Anthony
Cornell 1964, en þó óneitanlega öllu umfangsmeiri. Tók hann
með sér tvo „sendendur“ í flugvél frá London til Glasgow, en
„viðtakendur“ voru hvorki meira né minna en 72 talsins, dreifð-
ir um Bretland þvert og endilangt.
En það þarf meira en svona frumlegar tilraunir til þess að
eyða tortryggni gagnýnendanna, jafnvel þótt þær virtust gefa
góða raun. Það er fyrir þá sök, sem rannsóknir á hugsanaflutn-
ingi hafa orðið að grípa til tölfræðilegra sannana í auknum
mæli, hversu þurrmetislegar sem þær kunna að virðast. Dulsál-
fræðingar hafa orðið að sætta sig við að heyja sífellda baráttu
við þreytandi og síendurteknar tilraunaaðstæður. Þeir hafa
jafnvel neyðst til að búa sér til „aðferðir“.
Dr. S. G. Soal, breskur stærðfræðingur og könnuður á sviði
eðlisfræði, með mikla reynslu í þeim fræðum að baki, varð fyrir
því óvenjulega happi, að rekast á tilraunaþola, sem reyndust
óvenjulega auðvaktir til biðbragða og sýndu enda, áður yfir
lauk, þann árangur, sem bestur hefur verið talinn á sviði hugs-
anaflutnings fram til þessa.
Það var venja dr. Soals að eyða fríum sínum í gönguferðir um
fjallasvæðin í Norður-Wales. Bjó hann þá hjá fjölskyldu af al-
múgastétt í afskekktu þorpi á Snowdonsvæðinu. Dag einn, á ár-
inu 1955, er hann var að búa niður í töskur sínar til einnar
fjallaferðarinnar enn, datt honum í huga að gera sér það til af-
þreyingar að reyna hugsanaflutning við son gestgjafa síns og
bræðrung hans, sem var 13 ára gamall eins og hann og átti
heima í næsta liúsi við hann, í litla þorpinu þeirra. Strákarnir
hétu Glyn og Ieuan Jones og voru á alla lund eðlilegir og hvers-
dagslegir stráklingar, enda gaf hið fábrotna umhverfi, sem þeir
ólust upp í, ekki tilefni til annars. Dr. Soal lét því niður í tösk-
ur sínar sjö stokka af tilraunaspjölum, þar sem hver stokkur
hafði að geyma 25 spjöld, hver með 5 spjöld með myndum af 5
ólíkum dýrum - Ijónum, fílum, sebrahrossum, gíröffum og
mörgæsun.
MORGUNN
65