Morgunn - 01.06.1996, Síða 8
MORGUNN
irnar svo langt aftur sem heimildir ná hafa td. listamenn, skáld
og heimspekingar lýst tilvist æðri veruleika, að ekki sé minnst
á dýrlinga og helga menn allra tíma innan og utan allra
trúarbragða. Gegnumgangandi í sögu mannsins, hefur venju-
legt fólk af öllum þjóðfélagssdgum og stéttum haft hæfileika
völvu eða spámanns. Edgar Cayce er eitt dæmi frá okkar
tímum og Nostradamus er þekkt dæmi frá fyrri tíð, svo ein-
hverjir séu nefndir.
Vegna mikillar aukningar á dulrænum hæfileikum nú
síðustu árin hafa ýmsar æðri menntastofnanir erlendis komið
upp sérstökum rannsóknarstofum til að rannsaka fyrirbæri eins
og ESP, skyggni, hugsanalestur, hlutskyggni, hugstjórnun,
huglækningar, áruna og margt fleira sem ber vott um nýjar
víddir og tjáningu í mannlegri tilveru.
Könnun á innri sviðunum og á þessum nýju möguleikum
mannsins til þroska, hefur leitt af sér flóðbylgju af alls konar
námskeiðum. Sjálfsefjunartækni og hugarstjómun hefur reynst
mörgum vel til að breyta kringumstæðum í ytri veruleikanum,
til að losna við óæskilegar fíknir o.s.frv.
Innri veruleikinn hefur líka verið kannaður í gegnum
hugleiðslutækni af ýmsu tagi og með mismunandi aðferðum.
En flestar eiga uppruna sinn í austurlöndum fjær og þá einkum
í Indlandi, en þar er bæði hindúismi og búddismi upprunninn
og einnig jóga.
Til marks um hversu áhuginn hefur aukist á þessum
málaflokki er m.a. grein sem birtist nýlega í hinu víðfræga
tímariti Time. Greinin sem er heilar 9 blaðsíður, fjallar að
mestu leyti um heilun og áhuga almennings á nýjum aðferðum
til að halda heilsu í lífinu. Fólk er hætt að sætta sig við að
læknar meðhöndli sjúklinginn eingöngu sem bilaða vél. Fleiri
og fleiri, þar með taldir margir læknar, eru farnir að líta á
manneskjuna sem heildræna veru, þar sem hugur, tilfinningar
og líkami eru allt samverkandi þættir í heilsuferli og lífi hvers
manns.
6