Morgunn - 01.06.1996, Blaðsíða 9
í greininni kemur fram að mati dr. Herberts Benson (þekkts
læknis í Harvard Medical School), að 60%-90% læknisvitjana
eru vegna hug-líkamlegra einkenna og að venjulegar aðferðir
s.s. lyfjameðferð eða uppskurðir duga ekki við þeim. Það er
ekki nóg með að þessir sjúklingar nái engum bata, heldur líður
þeim oft og tíðum enn verr á eftir. Þeim finnst þeir oft afskiptir
eða jafnvel finnst sér misboðið eftir að hafa farið í gegnum
rannsóknir og skoðanir á ýmsum stöðum og hjá ýmsum
aðilum. Það er oft persónulega umhyggjan og alúðin sem
vantar, mannlegi þátturinn hefur gleymst.
Reyndar kemur fram í greininni að næg rannsóknargögn
liggi fyrir á löngum tíma, sem sýni að þeir sem hafi trú á æðri
máttarvöld, hafa betri möguleika á að ná heilsu eftir sjúkdóma,
eru í minni áhættuhópi hvað varðar t.d. hjarta-og æðasjúkdóma
og ýmsa geðræna kvilla s.s. þunglyndi. I framhaldi hafa verið
gerðar rannsóknir á hvaða þættir varðandi trúarlífið hefðu mest
áhrif. Hugleiðslu- og bænaiðkun voru talin stærstu áhrifa-
valdarnir á heilsufar og hæfileika til að ná góðum bata.
Seinni helmingur greinarinnar fjallaði um Deepak Chopra,
mann sem er orðinn frægur um öll Bandaríkin og víðar nú á
síðustu árum. Læknirinn D. Chopra er Indverji búsettur í
Bandaríkjunum. Hann hefur gefið út fjölda bóka um ayurved-
ísk fræði, heimspeki, hugleiðslu og heilun af ýmsum toga. Bók
eftir hann kom einmitt út fyrir síðustu jól í þýðingu Gunnars
Dal. Kjarnanum úr hugmyndum Chopras er lýst stuttlega á
þessa leið í bandaríska tímaritinu:
„Líkami okkar, sem virðist vera svo þéttur, er það í raun ekki. I fyrsta
lagi endurnýjast flestar líkamsfrumurnar með reglulegu millibili,
þannig að við erum ekki með safn gamalla líffæra, heldur erum við í
stöðugri þróun. I öreindasviðinu erum við auk þess ekki þéttari en
loftið í kringum okkur og engin skýr aðgreining er milli okkar og
umhverfis okkar. Að lokum þá hefur skammtafræðin sýnt fram á að
efni og orka eru umbreytanleg hvort í annað. Samkvæmt því erum við í
raun ekki einstaklingsverur, heldur miklu frernur staðbundnar birtingar
óendanlegs, alheimslegs orkusviðs.
7