Morgunn


Morgunn - 01.06.1996, Page 16

Morgunn - 01.06.1996, Page 16
MORGUNN tekið mið af andlegum veruleika hafa leitt ógæfu og óhamingju yfir fjölda fólks. Þetta á jafnt við um einstaklinga og heilu þjóðfélögin eða minni hópa fólks. Dæmi: ýmsar þjóðfélagskenningar þar sem manneskjan er skilgreind sem hópsál og öll frávik frá viðurkenndri (leyfilegri) hegðun, útliti eða trú hópsins er harðlega fordæmd. En eins og fyrr segir þá er hver og einn hér á jörðinni með sitt sérstæða reynsluferli sem hefur safnast í sarpinn á löngum tíma. Við höfum prófað ýmislegt, við höfum verið karlmaður og kona, við höfum verið rík og fátæk, heilbrigð og veik, elskuð og hötuð og við höfum tilheyrt ýmsum stéttum þjóðfélaganna. Allt er gert til að læra af því og víkka út reynslusvið sálarinnar. Við getum því ekki sagt að konur séu betri eða verri en karlar, að hvítir séu betri eða verri en svartir, verkamenn betri eða verri en stóreignamenn. Það er beinlínis rangt að dæma fólk eftir hópum, við erum einstök hvert fyrir sig og ef dóma er þörf, þá þarf að dæma hvern einstakling eftir sínum innri manni og gerðum sínum, og hver einstaklingur þarf að standa fyrir sínu og fyrir sér. En hvernig má rata hinn beina en oft erfiða veg sjálfs- þekkingar sálarinnar og koma í veg fyrir að lenda á hliðarspori sjálfsupphafningar og sjálfsdýrkunar? Þar má benda á tvennt sem oft hefur komið til bjargar. Annars vegar eru reglur um siðferði, sem verður að skilja og fylgja eftir bestu getu. Hins vegar er að rækta með sér lotningu til skaparans. En þetta tvennt er einmitt kjarninn í flestum trúarbrögðum. Því miður er kjarninn næstum ósýnilegur, oft vegna þess sem er hlaðið utan á hann. Þar á meðal er oft ýmislegt sem er án efa rangtúlkað og beinlínis notað til að viðhalda völdum til handa einhverjum einstaklingi eðajafnvel heilli stofnun. Sumar tegundir hugleiðslu henta vel til þess að rækta ástina og lotningu fyrir því æðsta (guði). Hvað varðar sið- ferðisreglurnar, þá er kjarninn í þeim sá sami hvar sem er í heiminum og í gegnum tíðina en með lítils háttar aðlögunum 14

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.