Morgunn


Morgunn - 01.06.1996, Page 47

Morgunn - 01.06.1996, Page 47
ásamt því að vera ekki frjáls ferða sinna, aldrei hafa verið ósátt við þetta stranga líf. Þegar hún lítur yfir farinn veg þykist hún greinilega sjá hönd Guðs í öllu. Jafnvel þegar allt virtist óráðið og óyfirstíganlegt þá var innra með henni algjört traust á því að einhver hefði stjórn á öllu, að Guð vissi allt og bætti allt. Hún þurfti aðeins að vera fús til að gera hans vilja. „Að vera hér í Karmel þýðir að vera algerlega opin fyrir því sem hann ætlast til af þér, að reyna að ráðskast ekki með það eins og þú vilt að það sé. Af því að mér hefur alltaf fundist hann vita hvað mér líður, þarf ég ekki að segja honum neitt, hann greiðir úr öllu. Eg vona bara að hann geti stýrt mér eins og honum þóknast og að ég sé algerlega opin fyrir vilja hans í lífi mínu.“ Systir Renate Renate er þýsk prestsdóttir, komin af gamalli listrænni og músíkalskri ætt. Hún átti örugga og fallega barnæsku í litlu þorpi í Bæjaralandi, í talsverðri einangrun. Hún dáði föður sinn og leit á hann sem guð þegar hann stóð í predikunar- stólnum. Hann var fæddur kennari og henni fannst dyr opnast innra með sér þegar hann svaraði spurningum hennar. Hún lifði í barnslegri, einlægri trú á guð og hefði ekki brugðið við að mæta Kristi úti í garði. Um það leyti sem hún var tíu ára og fjölskyldan flutti til stærra bæjarfélags fór hana að gruna að umhverfið liti Hfnaðarhætti þeirra óhýru auga og hæddist að þeim. Þá voru krisnir menn oft litnir hornauga í Þýskalandi og hún tók það mjög nærri sér. A unglingsárunum gekk Renate í Hitlersæskuliðið, sem í upphafi líktist helst skátahreyfingu, til að réttlæta tilveru sína sem prestsdóttir. Þá komst hún að því, að þar með bauð hún birginn flestum þeim gildum sem fjölskylda hennar aðhylltist 45

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.