Morgunn


Morgunn - 01.06.1996, Page 66

Morgunn - 01.06.1996, Page 66
MORGUNN enginn tali við afa, sem sitji í stólnum sínum og fái ekkert að borða. Einkennilegast var samt að enginn hafði sest í stólinn hans. Ég lít í stólinn og sé svip hans bregða fyrir eitt augnablik. Ég svara því stúlkunni að afi sé þreyttur og hafi ekki lyst. En fólkið í kringum okkur sagði ekki orð og vildi ekki ræða um svona hluti. Lilja Torp Sveitin Sem barn var ég óskaplega myrkfælin, kannski var ég svona næm, eða kannski magnaðist myrkfælnin mikið eftir sveita- veruna. Þó átti ég ömmu sem var mjög guðhrædd kona og hún kenndi mér bænir. Ég held að ég hafi samt sem áður ekki gert mér grein fyrir hvað bæn var. En þessu atviki úr sveitinni gleymi ég ekki. Mér var stundum strítt og verið að hræða mig. í húsinu var fullorðið fólk sem tók málstað minn og hinna barnanna þegar okkur var strítt. A bænum voru tveir unglingar sem stríddu okkur. Við skulum kalla þau Jón og Siggu. Bærinn var austur á Rangárvöllum, rétt hjá Odda. Þar var mikið talað um álfa, drauga og púka og áttu þeir að vera í fjósi, hlöðu, fjárhúsum, göngum og fleiri stöðum. Fyrir utan bæinn var stór hóll og átti Sæmundur fróði í Odda að hafa geymt þar lömbin sín og látið púkana gæta þeirra. Einn daginn bentu Sigga og Jón á holu í hólnum og sögðu: Passaðu þig á púkunum í holunni eða reyndu að toga í skottið á honum. En ég sá skelfilega ljóta veru fara inn í holuna, það var ekki dýr með fjóra fætur og skott, þetta var einkennileg 64

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.