Ný saga - 01.01.1991, Síða 7

Ný saga - 01.01.1991, Síða 7
ÓSTJÓRNLEG LOSTASEMI KARLA Á FYRRI TÍÐ Forboöiö kynlif! Spænskir embættismenn og indíánakona.. Hvaö veldurþviaö oft á tiöum tekst körlum ekki aö hemja kynhvöt sína? að slíkt „holdlegt óeðlis samræði" manna og skynlausra skepna væri óþekkt í sakalögum landsins og þekktist aðeins af sögum einum: „Æra er það íslandi, að saga þess aldrei enn sýnt hefur, neinn svo stórbrotlegan hér orðið hafa, hjá því, sern þvílíkt ber oftar við í öðrum löndum." Benti hann sérstaklega á Noreg, en þar voru þrír karlar dæmdir til dauða fyrir „bestiulega sam- lögun“ á árinu 1819. Eitt tilvik er þó þekkt úr annál Flateyjarbókar frá lokum 14. aldar. Þar segir frá Birni nokkrum „er kenndist að hann heföi legið með tveimur kúum. Var hann kviksettur en kúnum sökkt fyrir sjóvar hamra.“ Þetta var árið 1357 og hafði enginn viðurkennt annað eins áður „svo menn myndu." Ekki er heldur vitað til að þetta hafi gerst síðar. Að þessu leyti voru íslenskir karlar því mildari í háttum en karlar annars staðar. í návist kvenna voru ástríðu- öfgar karla á íslandi aftur á móti jafn miklar og meðal óhömdustu karla erlendis. Isidro Bonifacio Pena og aðrir karlar sem lögðust með skepnum stinga í stúf í þeim skilningi að kynhvöt þeirra átti sér ekki erindi við neitt sérstakt. Strangt tekið var hún blind. Kvendýr varð fyrir valinu vegna þess að það var við hendina. Kynhvötin ólgaði tryllt og varð að fá útrás þá og jregar. Karlar sem nauðguðu dætrum sínum höfðu hins vegar, að vænta má, flestir leitt að því hugann áður. Tiltekin kona varð hiö rnyrka viðfang girndarinnar. Siðari sagan frá Mexíkó varðaði feðgin og má ímynda sér að Juan Pedro hafi verið í sömu sporum og Humbert Humbert í skáldsögunni Lolítu (1955) eftir rjgþpkpv. Humbert liugsgðj unt dótturina á meðan hann svaf hjá móðurinni og velti jrví fyrir sér vikum og mánuðum saman hvernig hann gæti farið að því að komast yfir hana. Það tókst að endingu á liótelherbergi eftir að móðirin fórst undir bíl. Um slíkar nauðganir feðra á dætrum sínum eru ótal dærni hérlendis. Játning Bjarna Ólasonar á Hvassafelli haustið 1480 um samræði viö Randíði dóttur sína jafnast á við hvað sem er, þar á meðal árás Juan Pedro á dóttur sína, enda kenndu báðir djöflinum um: „í annan tíma eftir fjandans áeggjan seinna sagðist liann hafa borið sig að liggja með henni jrá hún var 14 vetra gömul, og sagðist jrá ei getaö hafa fyrri en hann hefði rýmt hennar getnaðarlim með sínunt tveimur fingrum. Sagðist hann |}á hafa legið með henni líkamlega með sínum getn- aðarlim, so hann hefði komiö inn til hálfvegis, en þá aö honum kom líkamans fýstin, jrá sagðist hann hafa gefið út sinn líkamans losta í sinn lófa. Sagðist hann þetta skemmdarverk gjört hafa fjórum sinnum með henni nteð fyrr sagðri aðför, en so oft upp frá því fullkomlega henni innan holds verið hafa að hann myndi það ei, og ávallt hafa kastað sínum losta burt í sinn lófa. Var hann þá eftir spurður því hann hefði þessa skamm gjört, en hann svaraði að hann vildi ei að barngetnaður mætti af verða“ Engum sögum fer af áliti Randíðar á þessum aðförum Kvendýr varö fyrir valinu vegna þess aö þaö var viö hendina. Kynhvötin ólgaöi tryílt og varö aö fá útrásþá og þegar. I návist kvenna voru ástríögöfgar karla á Islandi aftur á móti jafn miklar og meöal óhömdustu karla erlendis. 5
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.