Ný saga - 01.01.1991, Síða 18

Ný saga - 01.01.1991, Síða 18
Margrét Guðmundsdóttir ALÞÝÐUKONA OG LISTIN Þér var alla œvi ástum bundinn gróður lands og lista' Voð íslenskrar listasögu er víða með losi og glompum. Sérmennt- uðum vefurum er látið eftir að glíma við uppistöðu þeirrar voðar. Hér verður aðeins skotið örpræði gegnum uppistöðuna, í þeirri trú að litsviftir geti orðið af einum litlum þræði. Hlutur íslenskra kvenna í listasögu þjóðarinnar er æði forvitnilegur. Brotunum úr þeirri mynd hefur því miður enn ekki verið safnað saman að neinu marki. Það er eigi að síður ljóst að það voru konur sem dyggilegast studdu við bakið á fyrstu myndlistamönnum þjóð- arinnar. Það voru dætur og eiginkonur embættismanna sem gengu fram fyrir skjöldu, enda höfðu margar þeirra hlotið nokkra kennslu í teikningu.2 Hér á eftir verður hins vegar fjallað um afstöðu alþýðukonu til myndlistar. Hún komst í kynni við nokkra upprennandi myndlistarmenn þjóðarinnar og varpar ljósi á fyrstu skref listamannsefnanna til mennta. Elka Björnsdóttir, verkakona í Reykjavík leggur til bandið í vefinn. Dagbækur hennar, frá árunum 1915-1923, og bréf eru uppistaða greinarinnar. NÝR SJ ÓNARHEEMUR Deigla menningar á íslandi í lok annars áratugar aldarinnar var í Reykjavík. Þá þegar var hvergi á landinu eins mikið framboð af kvikmynda- og leiksýningum, tónleikum, fyrirlestrum og myndalista- sýningum og þar. Menningar- umræða fór að mestu fram í Hlutur íslenskra kvenna I listasögu þjóðarinnar er æði forvitnilegur. Brotunum úr þeirri mynd hefur því miður enn ekki verið safnað saman aö neinu marki. Það er eigi að síöur ijóst að það voru konur sem dyggilegast studdu við bakið á fyrstu myndlistar- mönnum þjóðarinnar. Elka Björnsdóttir fæddist að Reykjum I Lundareykjadal 7. september árið 1881. Tveimur árum síðar fluttist hún með foreldrum sínum að Skálabrekku i Þingvallasveit. Árið 1906 flutti Elka frá æskustöðvunum til Reykjavíkur og bjó þar til æviloka. Fyrstu fimm árin i bænum var Elka í vist en geröist lausakona eftir það. Þá starfaði hún m.a. við saltfiskverkun, síldarsöltun, þvotta, heimilishjálp og aðra daglaunavinnu. Haustið 1917 tók Elka að sér ræstingar á skrifstofu borgarstjórans og Slökkvistöðinni, að Tjarnagötu 12. Þar vann hún í tæp fimm ár. Elka Björnsdóttir lést í febrúarmánuði 1924. tímaritum, en þau fjölluðu langmest um bókmenntir-. Tímaritin birtu mjög sjaldan efni um aðrar listgreinar. íslensk myndlist leið sannlega ekki fyrir skvaldur. Hið íslenzka bókmenntafélag sendi félagsmönnum sínum Skími, sem bini langar ritgerðir um ýmsa þætti íslenskrar menningar og var í hópi metnaðarfyllstu tímarita. Halldór Guðmundsson hefur kannað félagatalið fyrir árið 1919. Hann bendir á, að þá bjuggju 320 af 1600 félagsmönnum í Reykjavík og þeir tilheyrðu flestir efri millistétt eða borgarastétt. í bænum var hins vegar enginn óbreyttur sjómaður félagi og aðeins sjö konur. í hópi reykvísku kvennanna var a.m.k. ein verkakona, Elka Björnsdóttir. í dreifbýlinu var félagatalið öllu alþýðlegra, eins og Halldór sýnir fram á. Fólk utan þéttbýiis- 16
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.