Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 23

Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 23
ALÞÝÐUKONA OG LISTIN íslenskir námsmenn í Kaupmannahöfn voriö 1921. Taliö frá vinstri: Tryggvi Magnússon teiknari, Finnur Jónsson listmálari, Valdimar Sveinbjörnsson íþróttakennari og Hjörtur Björnsson myndskeri. Finnur Jónsson tók á móti bróöur sínum og Hirti í Kaup- mannahöfn. En honum haföi ekki tekist að útvega Hirti samastað, eins oa gert haföi verið ráo fyrir. glötuð. Fimmtán ára aldurs- munur var á þeim systkinum, Elka var sem önnur móðir Hjartar. Bréfin bera merki þessa, frásagnarefnin og áherslan væru örugglega önnur ef viðtakandinn væri faðir eða vinur. Hjörtur var t.a.m. greinilega þráspurður um matarvenjur af systur sinni. Með hjálp bréfanna má draga upp ágæta mynd af hversdagslífi íslenskra ungkarla í Höfn veturinn 1920-1921. Hjöitur varð samskipa Ríkarði til Kaupmannahafnar. Þeir voru viku á leiðinni, hrepptu ágætt veður fyrir utan þoku sem tafði nokkuð ferðalangana. Ríkarður var á leið til Ítalíu, alþingi hafði veitt honum sérstakan styrk til þeirrar farar. Fjárveitinganefnd taldi Rómarferðir „ennþá nauðsynlegri listamönnum en þær voru sálum syndugra manna á miðöldunum."31 Þær gætu komið í veg fyrir að listamenn ofmetnuðust af verkum sínum. Finnur Jónsson tók á móti bróður sínum og Hjrti í Kaup- mannahöfn. En honum hafði ekki tekist að útvega Hirti samastað, eins og gert hafði verið ráð íyrir. Húsnæðisskortur var gríðarlegur í Höfn á stríðs- árunum, en náði hámarki árið 1920.32 Hjörtur dvaldi því fyrstu vikurnar á hóteli, örugglega í fyrsta sinn á ævinni. Nóttin kostaði tvær krónur og 50 aura, án fæðis. Þetta var mjög ódýrt hótel, víða fór verðið upp í 5 til 6 krónur. Það var engu að síður of dýrt til lengdar fyrir íslenskan lærling. Á næstu vikum var reynt að fá Hirti fastan samastað. Honum stóð til boða að leigja herbergi með Jóni Jónssyni, málara. En Hirti fannst leigan há, 90 kr. á mánuði fyrir utan ljós og hita, og „svo held ég að Jón sé ekkert skemmtilegur", skrifar hann systur sinni.33 Um mánaðamótin október- nóvember flutti Hjörtur í herbergi Finns að Lykke- holmsalle 4 A. Þá var Tryggvi Magnússon enn ókominn frá íslandi og hafði ekkert látið í sér heyra frá því um vorið. Félagarnir í Höfn töldu sennilegast að fátækt hamlaði utanferð hans. Hjörtur fékk því inni hjá Finni meðan beðið var frétta frá Tryggva. Herbergið er gott og viðkunnanlegt bjart og rúmgott og svo er „mikill kostur að það er á mjög rólegum stað, en þó ekki afskekktum. Rafljós fylgir því en ekki hiti.“ (12.11.1920) Einhver húsgögn fylgdu herberginu, a.m.k. skrifborð. En fyrstu dagana stóð Hjörtur í stappi við leigusalann, sem hann kallar alltaf „kerlinguna". „Eg var farinn að sjá eftir því að hafa ekki komið með sængurföt, því kerlingin sagðist ekki hafa í rúm nema handa einum, það sem Finnur hefði. Svo svaf ég undir sóffateppinu í tvær nætur, en daginn eftir var kominn sæng og lök í sóffann og hef ég sofið við það síðan og hvorugt minnst á það.“ (12.11.1920) Herra- mennirnir þurftu ekki að þrífa herbergið sjálfir, jaað var innifalið í leigunni. Herbergis- frúin sá einnig um að búa um rúm þeirra félaga, þótt misbrestur yrði stundum á því: „það er ekki nærri alltaf að kellingin býr um okkur, hellir úr skolpfötunni eða sækir vatn í könnuna, en þetta gerir ekki svo mikið til,“. (21.12.1920) Finnur og Hjörtur greiddu 80 kr. á mánuði í leigu og fyrir þjónustuna. Herbergisfrúin þvoði hins vegar ekki af þeim spjarirnar. En félagarnir höfðu heppnina með sér. Við Lykkeholmsalle var jivottahús þar sem jaeir létu þvo af sér, borguðu fyrir hvert stykki og þótti vel gert. Veðrið var gott jiennan vetur í Kaupmannahöfn „sífelld blíða að því að við mundum kalla", segir Hjörtur. En þrátt fyrir jaetta góðviðri fanst Hirti kalt og hráslagalegt. „Hvert vindkul ætlar að smjúga gegnum allt og jsrengir jaessu eiturlofti, sem hér er að manni.“ í byrjun desember höfðu jaeir Finnur En þrátt fyrir þetta góöviöri fannst Hirti kalt og hráslagalegt. „Hvert vindkul æilar aö smjúga gegnum allt og þrengir þessu eituilofti, sem hér er að manni." 21
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.