Ný saga - 01.01.1991, Síða 25

Ný saga - 01.01.1991, Síða 25
ALÞÝÐUKONA OG LISTIN um sóma sinn. Það var nærri tveggja tíma gangur heim, sporvagnar ganga ekki á nóttunni. (8.12.1920) Finnur var auðvitað búinn að þaulskoða listasöfn í Kaup- mannahöfn og bauðst til að fara með Hjört. Fyrst var Carlsberg Glyptotek heimsótt. Mynd- verkin vöktu að sönnu ekki sérstaka athygli Hjartar nema eitt eftir „aumingja Rembrandt". En byggingin sjálf jress meiri og henni er lýst næsta ítarlega í bréfi til Elku. „Manni hlýtur að oflrjóða að allt það skraut og íburður skuli vera keypt fyrir örlítinn part af því sem heimskir menn hafa látið fyrir bjór.“ Safnverði kallar hann einkennisbúna „þræla“, sennilega að hætti Finns. En Hirti fannst erfitt að skoða söfn, sagðist orðinn slituppgefinn eftir 3 tíma og hugsunin aukin heldur orðin hálf sljó.« í byrjun desember hætti Finn- ur Jónsson gullsmíðunum og snéri sér að myndlistinni. Hann hóf nám hjá Olav Rude sem þótti einn mesti framúr- stefnumaður í danskri málaralist. Hjörtur sótti málverkasýningar í Kaupmannahöfn og hefur sennilega notið leiðsagnar herbergisfélagans í vali á sýningum. Ég kom um daginn á málverkasýningu sem Kjarval hélt, mér fannst heldur lítið til flestra myndanna koma, |oó sumar væru rnjög fallegar. Svo kom Veitingar voru ærnar og gleöskapur mikill meö söna og hljóöfærasíætti, dans og leikjum. Gestirnir fóru ekki heim fyrr en klukkan fjögur aö nóttu. Gönguferöin heim varð aö ævintýri meö sómakærri dömu. stórborginni og málinu. í fyrsta bréfi Hjartar heim segir: „Ekki er ég mjög hrifinn af þessari Kaupmannahöfn, hún er nóg til að gera mann vitlausan, fyrst í stað.“ Hann vandist þó borginni fljótt og lét sér ekki leiðast. Hjörtur fullvissaði systur sína engu að síður um að hann væri ekkert spenntur fyrir lífinu í Höfn.H En stórborgarbragurinn sem endurpeglast óneitanlega í eftirfarandi lýsingu hlaut að valda henni áhyggjum. „Fréttir teljast það ekki sem er í blöðunum á hverjum degi um þjófnað, rán, morð, mis- þyrmingar o.þ.u.l.. Það er svo alvanalegt að maður hættir að taka eftir því.“ (3.1.1921) Hjörtur kynntist nokkrum Islendingum sem búsettir voru í Kaupmannahöfn. Ríkarður dvaldi í Höfn fram undir jól. Hann bjó úti á Austurbrú hjá Þórði Jónssyni tollþjóni og konu hans Steinunni Olafsdóttur. Finnur og Hjörtur voru báðir heimagangar hjá þeim hjónum. Fjöldi landa lagði leið sína út á Austurbrú til Þórðar og Steinunnar, heimili þeirra var miðstöð íslendinga í Höfn. Herbergisfélagarnir Irjuggu ekki í göngufæri frá Austurbrú „annars væri ég þar oftar á kvöldin, því það er hálf kalt hérna hjá okkur“, skrifar Hjörtur. Honum fannst mikið til gestrisni hjónanna koma og það sem mest væri um vert allir fengju góögeröir." Hjörtur kynntist gleðiboðum Dana. Honum var boðið til meistara síns í Hellerup. Annar sonurinn átti afmæli og jtiangað var boðið 30 ungmennum. Veitingar voru ærnar og gleðskapur mikill með söng og hljóðfæraslætti, dans og leikjum. Gestirnir fóru ekki heim fyrr en klukkan fjögur að nóttu. Gönguferðin heim varð að ævintýri með sómakærri dömu. ég átti samleið nærri heim með svolítilli stúlku títlu, henni þótti ósköp vænt um að ég var henni samferða, því hún væri svo hrædd að vera ein úti á götu að nóttu til, og var það lítil furða, ef þeim er annars nokkuð annt Velvildarmenn Hjartar og Finns í Kaupmannahöfn, hjónin Þórður Jónsson og Steinunn Ólafsdóttir. Eirstunga eftirRíkarð Jónsson. ég á sýningu hjá dönskum málara, þar var ekkert að hafa sem sjáandi var, eina bótin að það var ókeypis aðgangur að þeim báðum. Svo sá ég hina árlegu haust- listasýningu dana, og þar keyrði fyrst um þverbak,þar var futurisminn svo magn- aður að engu var líkara en myndirnar væru eftir al- brjálaða menn. (8.12.1920) Félagarnir höfðu mjög ólíkar hugmyndir um myndlist. Finnur var djarfari og fylgdi nýjum og róttækari viðhorfum, sem fólu í sérbrum umbreytinga. Hann átti eftir að gera stórhuga og metnaðarfulla tilraun til að rjúfa einangrun íslenskrar myndlistar. Hjörtur átti eftir að sjá enn magnaöri myndir hjá vini sínum. Hjörtur hugðist ekki leggja listina fyrir sig, þótt Elka gerði sér vonir um það. Hún skrifar bróður sínum og segir að„margir spái því“ að Hjörtur verði listamaður. Hann tók því fjarri og skrifar: „mér liggur þá við að taka undir með „mingja" Stefáni" „Mér þykir nú bara gott ef mingja Gunnlö veit hvað kunst er.“(11.3.1921) Finnur vildi hins vegar gera herbergisfélaga sinn að þingmanni og hvatti Hjört til að gefa sig að stjórnmálum. Sú hugmynd féll í betri jarðveg þó ekki vildi hann verða þingmaður „hef aldrei tíma til þess ]x) ekki væri annað til fyrirstöðu.“ í ársbyrjun 1921 fór verð á matvöru og eldsneyti að lækka í Danmörku. Mjólkurlítrinn sem kostaði 67 a. i október var kominn niður í 48 a. í febr- úarmánuði. Verðlækkun á eldsneyti varð þó öllu meiri, en það skipti ekki sköpum fyrir herbergisfélagana sem höfðu að mestu sparað sér þann útgjaldalið. Peningaleysið fór að sverfa að herbergisfélögunum. Þeir fluttu því úr Lykke- holmsalle að Gothersgade 87 II í marsbyrjun. Þar greiddu þeir 60 kr. á mánuði fyrir herbergi í gömlu húsi án rafmagns og ekki eins vel búið húsgögnum. Sambúðin við húsfélaga í Lykkeholmsalle hafði ekki 23
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.