Ný saga - 01.01.1991, Síða 32

Ný saga - 01.01.1991, Síða 32
Jón Thor Haraldsson Osló. Á spássíuna í ljóðahókum góðskáldanna hafði hann skrifað ærna fjöld klámvísna eftir hlutaðeigandi höfunda. Friðrik hórðarson ljósritaði þetta allt og sendi Þjóðskjalasafninu. - Og fékk ákúrur fyrir lijá lands-bókaverði að senda þeim þetta, ekki sér: „Landsbókasafnið á líka handrit!" (Sögn Friðriks. Sjá og Gunnar Sigurðsson (safnaði): Apoktyfar vísur, Rv. 1938, bls. 26-27). KVENNAFAR ENN OG VON, AÐ LINNI NÚ SENN Krókinn vildi’ af kappi tnala kvennaljóminn Indriði; þegar álli lil að taka, tómhljóð var í skúffunni. Um þessa vísu hefur Vil- hjálmur Þ. Gíslason þetta eitt fram að færa: „Kvennaljóminn Inclriði J. Einarsson skáld og revisor, og er átt hér við endur- skoðunarstörf". Ekki verður það nú beinlínis lesið út úr vísunni, en hitt er rétt, að Indriði var oft nefndur Indriði revisor eða bara „revisorinn". Það gerðu að minnsta kosti grannar hans í Vonarstræti 12, húsi Skúla Thoroddsens: „Er búið að reisa tröppuna fyrir revisorinn"? var frú Theodóra vön að spyrja á gamlárskvöld. Indriði þurfti að klöngrast yfir girðingu til þess að geta gengið í kringum hús sitt og sagt: „komi þeir sem koma vilja“ o.s.frv. Þetta er sögn Maríu Skúladóttur Thoroddsens. Hver veit annars nema orðið „kvennaljómi" hafi verið eitthvert dulið skens, einhver hálfkveðin vísa. Eg hef að minnsta kosti krotað á spássíuna: „Eitthvað heyrði ég um það í ungdæmi mínu, að Indriði hefði átt viðhald í Hafnarfirði, gengið þangað úr Reykjavík og kallað það „heilsubótargöngur". - Og getur ekki gagnslausari fróðleik né ómerkilegri, jafnvel þótt satt væri. Svona rétt að síðustu: Að sögn Kristjáns Bersa Ólafssonar stóð faðir hans, Ólafur Þ. Kristjánsson, á því fastar en fótunum, að þekkt vísa úr 1. rímu væri ódulbúið skens um gamlan graðnagla, og dæmi nú hver fyrir sig; að sögn V.Þ.G. merkir „Yggjar kvon“ jörð: Hollur tiggja', ervar til von, vanur fénu að býta rammur Yggjar reið þar kvon riddarinn Tryggvi Gunnarsson. Gvendi á Sandi sveið í lófann, synjuðu þeir urn skáldslyrkinn. „Gvendur á Sandi“ er auð- vitað Guðmundur Friðjónsson. Að sögn frú Theodoru Thoroddsens sátu þeir Valdimar Ásmundsson og Guðmundur skólaskáld yfir þessum fyrriparti og gátu ekki botnað, svo vel væri. Þá „snaraðist inn“ Einar Hjörleifsson og bætti við: Irtdriði þurfti að klöngrast yfir girðingu til þess að geta gengið í kringum hús sitt og sagt: „komi þeir sem koma vilja" o.s.frv. Einn með hnýtlum höndutn skóf hann himingrautar-þottinn sinn. Þetta á að vera „skens um skáldmái Guðmundar” segir VilhjálmurÞ., ugglaust með réttu (bls. 123). Af sama toga er spunnin vísa, sem móðir mín kenndi mér en vissi ekki höfund að; hún fær að fljóta með: / sóthríð í eldhúsi er það fríða valkvendi. Eldar lýðum ómeti og eigrar á gríðarstuttþilsi. Það er annars fróðlegt að bera saman umsóknir Matthíasar prests og Guðmundar bónda. Ólíkt er meiri reisn yfir skáldbónda en skáldjöfri, en út í þá sálma verður ekki farið. Hver veit annars nema orðið „kvennaliómi" hafi verið eitthvert dulið skens, einhver hálfkveðin vísa. SKÚLAMÁLIN í elleftu rímu kemur til sögunnar Lárus H. Bjarnason. Sá var af Magnúsi Stephensen sendur á ísafjörð, fyrst vegna máls Sigurðar „skurðs" en síðar til að rannsaka alla embættisfærslu Skúla Thoroddsens sýslumanns og hrekja hann úr embætti. Verður að gera ráð fyrir því, að saga sú sé lesanda í öllum meginatriðum kunn. Fjórar vísur fyrst: SendurLárus vestur var vígamóði fylllur; móti Skúla brandinn bar barðist eins og trylltur. Komst í marga þunga þraut þrekinn Baldur skíða; ísfirðingar álma-Gaut œtluðu’ um nótt að hýða. Segirfomum sögum í, sem að ýmsir triia, að Lánis hugðust heljatþý úr hálsliðunum snúa. Lygi sjálfsagt er það allt um þann kaþþa friðan, en eitt er víst, að höfuð hallt hefur 'ann borið stðan. Ilvað síöustu vísuna varðar er þess að geta, að Lárus bar bókstaflega „höfuð hallt“, eins og greinilega sést af ljós- myndum. Rannsóknin sóttist Lárusi bæði seint og illa enda ekki á góðu von: Skúli „snýr öllum vitnum systematískt" segir hann í bréfi til bróður síns! 7 Það er „móti Skúla brandinn bar. 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.