Ný saga - 01.01.1991, Page 53

Ný saga - 01.01.1991, Page 53
Hvererstaöa uppgraftarins í Viöey tuítia, hvaö er aö baki og hvaö liggurjyrir? Uppgröfturinn var upphaflega í tengslum við endur- bygginguna á Viðeyjarstofu. í tengslum við það var ákveðið að byggja þarna hús neðanjarðar og það varð til þess að athuga varð hvort fornleifar væru að finna á þessum stað sem var mjög líklegt, eins og síðar kom á daginn. Þarna fundust mannvistarleifar bæði frá tímum Viðeyjarstofu, það er frá þeim tíma sem hún var byggð og lengra aftur í tímann frá síðmiðöldum; frá þeim tíma sem klaustrið var starfandi i Viðey. Þarna hafa fundist mstir gangabæjar; stór híbýli, löng göng sem búið er að grafa að hluta til en skálinn er á aðra hönd og stofa á hina. Skálinn er mjög stór, um 100 m2 að innanmáli. Þar inn af er síðan stórt búr með stórum niðurgröfnum kerjum. Eftir fimm sumur í uppgreftri emm við búin að fá nokkuð heillega og skýra mynd af húsaskipan. Þetta hefur reyndar verið tekið í bútum af því að svæðið er það stórt að við getum ekki opnað það allt í einu og tekið þetta síðan lagskipt niður, heldur verðum við að taka þetta í hlutum og raða þessu síðan saman eftir á. Þetta er jwí smátt og smátt að taka á sig mynd. Þetta er hins vegar mjög viðamikill uppgröftur; bæði er að þarna hefur verið byggð í margar aldir og það mikil byggð miðað við íslenskar aðstæður. Þá hafa skipulegar fornleifarannsóknir ekki verið mjög fyrir- ferðamiklar á íslandi þannig að oft á tíðum þarf að vinna hluti frá gmnni. Það hefur t.d. ekkert verið grafið á klausturstöðum áður og það er ekkert vitað hvernig klaustur litu út á íslandi, nema út frá rannsókn sem Hörður Beinagrind frá síðari hluta 18. aldar sem fannst í Viðey sumarið 1988. Þeirri hugmynd hefur verið varpað fram að þetta kunni að vera líkamsleifar Jóns sonar Skúla fógeta. Auk greftrunartímans, byggist hugmyndin á þvíað merki fundust um áð einstaklingurinn sem beinagrindin er af hefði þjáðst af þvagfærasýkingu í lifanda lífi. Svo mun háta verið um Jón, samkvæmt rituoum heimilaum. Agústsson hefur gert á gömlum úttektum sem til eru á klausturstöðum til að reyna aö komast að jwí hvernig þessi mannvirki hafi litið út. Þegar uppgröfturinn byrjaði var í rauninni ekkert vitað hvar klaustrið var staðsett á eyjunni eða hvernig húsin litu út. Það var því allt eins víst að það hafi verið einhvers staöar annars staðar. Það sem við höfum verið að finna eru fyrst og fremst bæjarhúsin sem eru frá tíma klaustursins. Við höfum ekki fundið ennj)á sjálft klaustrið má segja, ekki konventuhús, kapitolum, málstofu eða neitt slíkt. Þetta eru fyrst og fremst bæjarhúsin 51

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.