Ný saga - 01.01.1991, Síða 59

Ný saga - 01.01.1991, Síða 59
nýjabragð er að í íslenskri sögu: Gísli Ágúst fólksfjöldasögu, en Stefán og Þorleifur verka- lýðssögu Gísli Gunnarsson fjallar (eins og Björn Lárusson áður) um 17.—18. öld og Harald um 18. öld; Pétur, Magnús og Gísli Ágúst um 19.—20. öld; en Jreir síðustu, Stefán, Þorleifur, og Ingólfur að mestu, um hrein 20. aldar efni. Þannig birtist í þessum rannsóknum vaxandi áhersla á sögu síðari tíma, og raunar eru enn í smíðum við sænska háskóla doktorsritgerðir um sögu íslands á þessari öld. Áherslan er ekki síst á sögu stétta og stéttasamtaka, sem mega heita meginviðfangsefni Magnúsar, Stefáns, lngólfs og Þorleifs. Þorleifur er einn um Jrað að leggja meginþungann á tímabilið eftir 1940. En stéttir og stéttasamtök áratuganna 1910—40 eru í sviðsljósinu hjá þeim öllum fjórum, og er til- gangur þessarar samantektar öðru fremur sá að vekja athygli á nýmælum sem það svið varða. ÞORLEIFUR: DÖNSK GERÐ OG ÍSLENSK Bók Þorleifs Friðrikssonar hefur þá sérstöðu að vera upphaflega rituð á íslensku fyrir íslenskan markað (Gullna flugan. Saga átaka í Alþýðuflokknum og erlendrar íhlutunar um íslensk stjómmál íkraftifjármagns, Örn og Örlygur 1987; Undirheimar íslenskra stjómmála. Reyfara- kenndur sannleikur um pólitísk vtgaferli, Örn og Örlygur 1988). Síðan er hún þýdd til útgáfu í danskri ritröð og þýðingin lögð fram til doktorsvarnar í Lundi. Gullna flugan og Undir- heimarnir eru svo kunnar bækur að óþarft er að rekja efni J^eirra hér í neinum smáatriðum.' Meginefnið, sem tekur Undirheimana alla ásamt síðustu köflum Gullnu flugunnar, er sagan af stríöandi fylkingum í Alþýðuflokknum og AlJ^ýðusambandi íslands á árunum 1952—56, Jr.e. frá því að Hannibal Valdimarsson verður fornraður Aljrýðu- flokksins og þar til hann sest í ríkisstjórn fyrir Aljrýðu- bandalagið og er jafnframt forseti ASÍ. Á undan fer allrækilegur inngangur um sögu Alþýðuflokksins frá upphafi, einkum um átök og ágreining innan hans. Rauður þráður gegnum báðar bæk- urnar er tengsl Aljrýðuflokksins við erlenda jafnaðarmenn, sér í lagi norræna, stuðningur þeirra við hann og áhrif þeirra á stefnu hans í viðkvæmum málum. Dönsk þýðing og doktors- vörn gera bækurnar í sjálfu sér hvorki betri né verri.2 En að því leyti sem Þorleifur hefur endurskoðað þær í jDýðingunni á hún auðvitað að leysa íslensku gerðina af hólmi.3 Það er þó fljótsagt, að þýðingin er nauðalítið breytt, nema í þeim atriðum sem nú skal greina: Stefán Hjartarson fjallar í doktorsritgerð sinni að nokkru leyti um sama efni og Þorleifur, jafnvel á grundvelli sömu heimilda, og gerir á nokkrum stöðum athugasemdir við Gullnu fluguna. Þessum athugasemdum svarar Þorleifur í dönsku útgáfunni, stundum aðeins í tilvísunargreinum, stundum í meginmáli, en rækilegasta svar hans er þó í ritdómi hans í Sögu (1990, s. 218—230) um bók Stefáns.Kafli 3.b i Gullnu flugunni, „Alþýðuflokkurinn gengur í alþjóðasamband sósíal- demókrata" er t.d. aukinn nokkuð í Jrýðingunni, bæði með nýjum upplýsingum og nánar rökstuddri niðurstöðu, þannig að hann verður að teljast úreltur, en líta ber á rit- dóminn sem nýjustu umfjöllun Þorleifs um efnið. Fyrsti og síðasti kafli dönsku gerðarinnar, „Indledning" og „Afsluttende refleksioner", eiga sér ekki hliðstæðu í íslensku gerðinni. Talsvert af efni J^eirra er Jdó bein þýðing á texta sem stendur hér og þar í íslensku bókunum. Helstu viðbæturnar eru um „forskningssituationen“ (s. 17—20), þar sem Þorleifur lýsir m.a. afstöðu rannsóknar sinnar til verka Ólafs R. Einarssonar, Magnúsar S. Magnússonar og Stefáns F. Hjartarsonar, og ný samantekt (s. 274—282) um áhrif norrænna jafnaðarmanna á Alþýðuflokkinn, þar sem enn er brugðist við sjónarmiðum Stefáns og að einhverju leyti svarað annarri gagnrýni á fyrri bækurnar, þótt ekki sé berum orðum að henni vikið. Aðrar tilfærslur á efni eru aðallega þær, að umfjöllun um Alþýðuhúsið hf. (úr Undir- heimunum, s. 117—123) ersett á sinn stað í atburðarásinni og tvö löng skjöl eru tekin út úr meginmáli og birt sem viðbætir. Smávegis er fellt brott í Jrýðingunni, en varla neitt sem um munar annað en umfjöllun (Undirheimamir; s. 126—127) um stjórnarmyndunina 1956 og tvíbenta afstöðu AljDýðuilokksins til fyrirheitsins um brottför hersins, Joar á meðal löng tilvitnun í samtal við Guðmund I. Guðmundsson. Þetta virðist Þorleifur nú hafa dregið til baka. DOKTORSRITFORMIÐ Hinar sjö bækurnar eru samdar og gefnar út gagngert sem doktorsrit. Bók Gísla Gunnarssonar hefur þó komið út endurskoðuð á íslensku ( Upp er boðið ísaland. Einokunar- verslun og íslenskt samfélag 1602—1787, Örn og Örlygur 1987); frumútgáfan má þar með heita leyst af hólmi, a.m.k. fyrir íslenska lesendur. Af sex íslendingum er Stefán Hjartarson sá eini sem leggur sig eftir því að rita á sænsku. Hinir nota ensku, alls ekki allir vegna þess að hún hafi verið AF BÓKUM En stéttir og stéttasamtök áratuganna 1910-40 eru t sviösljósinu hjá þeim öllum fjórum, og er tilgangur þessarar samantektar öðru fremur sá að vekja athygli á nýmælum sem það svið varða. 57
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.