Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 74

Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 74
Krístín Ástgeirsdóttir 1841 segir hún: „Samkoman stendur nú í höfuðstaðnum. Ekki er frétt hvað þar gerist, nema að Alþingið eigi að standa í Reykjavík, að minnsta kosti í fyrsta sinn. Líkar almenningi illa að það staðnæmist þar, þar svo óheyri- lega dýrt sé að halda sér þar uppi og fleira og fleira".22 Siðar í sama bréfi skrifar hún: „Almenningur er nú mikið kvíðandi fyrir sköttum og álögum sem meina komi af samkomunni, af skóla- flutningum, af Alþingi og fleiru, svo alllítið þakklæti munu þeir herrar fá fyrir útvegurnar".23 Húsfreyjan á Bessastöðum heyrir greinilega meira af þeim röddum sem efast og kvarta en hinum sem fagna og hún kallar föðurlandsvini. LÍTIÐ ER NÚ GJÖRT ÚR MÓÐURBRÓÐUR OKKAR Ummæli Ingibjargar eru á stundum býsna óræð. Hún hafði miklar áhyggjur af Grími syni sínum eftir að hann hélt utan til náms, enda var hann foreldrum sínum dýr. Til þeirra streymdu reikningar frá skröddurum og hötturum Kaupinhafnar. Grímur hélt sig stórmannlega, en próf drógust á langinn. Það er stundum erfitt að átta sig á því hvort meiningin sé jákvæð eða neikvæð í ummælum Ingi- bjargar t.d. er hún skrifar um Grím son sinn í bréfi til bróður síns 2. mars 1843: „Hann mun líklega vera kominn í félagsskap við einhvern föðurlands- vininn“.2< Grímur Jónsson hafði kvartað yfir því að systursonur lians kæmi ekki í heimsókn og heldur að hann sé eitthvað súr í sinn garð. Svo mikið er víst að föðurlandsvinirnir og Grímur Jónsson eiga ekki samleið fyrst það er ástæða fyrir fjarveru skáldsins unga, hvað sem Ingibjörgu annars finnst um þá. Erfitt er einnig að túlka ummæli Ingibjargar frá 13. nóvember 1843 er hún skrifar Grími Jónssyni: „Ég samgleðst með þér, að þú ert ekki kallaður á Alþing. Munu nú góðir menn hafa í fleiri horn að líta en það, sem þú lítur í“.23 Grímur Jónsson var aftur orðinn amtmaður á Möðruvöllum og það er eins og hún sé að gefa í skyn að hann megi teljast góður að sleppa við þetta amstur. Líklegra þykir mér þó að Ingibjörg sé að hugga Grím og að í bréfi dóttur hennar Guðrúnar til Gríms Thomsen frá 28. nóv. 1843 komi fram hið rétta viðhorf fjölskyldunnar: „Lítið er nú gjört úr móðurbróður okkar, að hann ei er valinn. Hann mun þó ekki síður velviljaður fósturjörð sinni en sá mikli Bardenfleth'1.26 Tíminn líður og enn er þref- að um Alþingi. Á vetrar- mánuðum 1844 erlngibjörg enn á neikvæðu nótunum. Hinn 13- mars skrifar hún Grími bróður norður í land: „Lítið gleðja menn sig hér yfir þessu Álþingi. Það eru nú líklega þeir sem ekki hafa vit á“.27 Næsta vetur kveður við annan tón er hún skrifar syni sínum til Kaupmannahafnar. Nú leikur ljómi um sóma íslands og væri gaman að vita hvað varð til að breyta skoðun Ingibjargar á Jóni þessumSigurðssyni. Bessa- stöðum 25. febrúar 1845: „Heilsaðu frá mér löndum mínum. Ég hef sætt mig fullkomlega við Jón Sigurðsson. Þó hann kunni að hafa sært mig, hefur hann ekki gjört það móti sinni sannfæring1'.2” Ekki minnist Ingibjörg oftar á aðgerðir föðurlandsvinanna í þeim bréfum sem til eru frá henni til Gríms amtmanns, enda gerast þau nú stutt. Hann er norður í landi og sennilega hafa honum borist fréttir af Alþingi og öðrum málum með þeim blöðum sem gefin voru út á þessum tíma. í það minnsta nefnir Ingibjörg stjórnmálin ekki einu orði. Erfiðleikar halda nú innreið sína í líf Ingibjargar. Bróðir hennar og eiginmaður deyja með stuttu millibili 1849. Ingibjörg er greinilega mjög sár vegna hinna pólitísku mótmæla sem Grímur amtmaður mátti þola norður í landi og telur þau eiga sök á dauða hans. Húsfreyjan á Bessastöðum heyrir greinilega meira af þeim röddum sem efast og kvarta en hinum sem fagna og hún kallar föðurlandsvini. Ingibjörq Jónsdóttir var hvorki hugsjónarkona né baráttukona og hún hafði sínar efasemdir um að sjalfstæðisbrölt landans væri af hinu góða. A þessum tíma voru samt kynsystur hennar úti I Evrópu byrjaðar að berjast fyrir frelsi, jafnrétti og bræðralagi. Þessari mynd frá byltingarárinu 1848 er ætlað að sýna pólitiskt brambolt kvenna I Paris I skoplegu Ijósi. 72
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.