Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 83

Ný saga - 01.01.1991, Qupperneq 83
mynd sem tekin var árið 1944. Fleiri dæmi um vinnubrögð af þessu tagi mætti nefna. Erlendur, er þetta óþarfa nákvœtnni í sagnfrœðingum? Erlendur: Nei, ég reyni að forðast svona sjálfur þótt aldrei takist það fullkomnlega. Ef skoðaðar eru t.d. myndir sem eru teknar um 1924 og myndir sem eru frá tímabilinu 1936-38 þá er talsverður munur á þeim, jafnvel þó þær séu bara hvor af sínum saltfisksreitnum. Flestum þætti e.t.v. nóg að hafa gamla mynd af fólki á reit í svart-hvítu. Mér finnst spennandi að vera heill í þessu þótt stundum sé freistandi að reyna að sleppa fyrir horn ef það er efni sem hefur almenna skírskotun,- en að rugla saman myndum frá 1930 og 1950,- það má bara ekki. Hvað er varið í að vinna verk ef slíkt er látið viðgangast? Ég get nefnt skemmtilegt dæmi úr útgerðarsögunni. Ur heimsstyrjöldinni fyrri hafa engar lifandi myndir verið til. Árið 1916 var mikið uþþgangsár í sjávarútvegi, síld- og saltfisksframleiðslan náði hámarki miðað við það sem áður hafði verið. Nú vill svo skemmtilega til að x heyhlöðu í Bandaríkjunum finnst tveggja eða jtxriggja mínútna kvik- myndabútur frá 1916 sem bandarískir kvikmynda- gerðamenn höföu tekiö hér á landi. Og þeir eru svo liittnir að joeir taka myndir af síldarsöltun og saltfiskverkun,- og svo eiu myndir af Geysi og hverum sem liefur minna gildi. Það er stórkostlegur fengur að fá þessar myndir jafnvel þó þær séu skemmdar og illa farnar. í verkinu finnst mér ástæða til að segja að myndirnar séu frá þessu ári. Guðmundur Karl lijá kvikmyndasafninu uppgötvaði þær við lestur ársskýrslu Alþjóðasambands Kvikmynda- safna. I síldai'senunni má t.a.m. sjá að ekki eru enn komin til sögunnar þessi bjóð sem allar kerlingar standa við sem við höfum séð hingað til heldur er verið að bera síldina í handtrogi og koma jxví fyrir við tunnuna og saltað úr því ofan í tunnuna. Ég gæti vel ímyndað að með tilliti til þessa og annarra atriða þættu myndirnar merkilegt rannsóknarefni. Þetta eru að vísu bara þrjú skot en þau eru verðmæt. Helgi: Sagnfræðingar eru ekkert áfjáðir í að gera þætti eins og þá sem fyrir skömmu voru gerðir um íslenska húsagerðarlist. Þar er beitt hinni vanalegu uppskrift: skot kvikmyndatökumanns, tal stjórnanda þáttarins, lítil tengsl á milli og síðan eilíf viðtöl sem eru ekkert annað en myndskreytt útvarpsviðtöl. Þetta höfðar ekki til sagnfræðinga |iví í þessu felst engin ögiun. Það sem sagnfræðingar hafa ekki gert er að glíma við að búa til það sem við getum kallað sagnfæðilega þætti þar sem sagnfræðilegar kröfur eru upþfylltar og sagnfræðileg álitamál tekin til umfjöllunar. Þá koma vandræðin út af myndefninu. Menn vita ekkeit hvernig þeir eiga að fara að þessu. Sjónvarpið hefur látið gera jrætti um sögustaði sem er kjörið elni fyrir sagnfræðinga og ódýrasta efni sem hægt er að búa til. Einn maður sem tekur mynd og einn maður sent les texta, tíu mínútur í senn. Eggert, þú hefur iintiiö sjónvarþsþátt utn sögulegt efni. Hver er þín reynsla? Eggert: Þetta var fyrir sjö árum og þá var maður ákaflega óreyndur í þessum efnum og rétl að byrja að spá í framsetningu sögulegs efnis í sjónvarpi. Þátturinn var gerður í tilefni af fjörutíu ára afmæli íslenska lýðveldisins. Við vorum tveir sem sömdum handritið og féllum í jtá gryfju að skrifa textann fyrst enda vanastir því að hann réði ferðinni. Síðan var farið á stúfana og leitað að myndefni. Þrátt fyrir þessi mistök lærði maður heilmikið. Við skoðuðum aragrúa mynda, bæði í eigu Sjónvarpsins og annarra stofnana, og komumst að raun um hversu gríðarlega margar og merkilegar heimildir eru til í þessum geira. Við fylgdum þeirii meginreglu að vera með myndir frá sama tíma og fjallað var um í hvert sinn og það tókst nokkurn veginn, þótt stundum þyrfti að leita vel til þess að dæmið gengi upp. Þá var fióðlegt að kynnast tæknivinnunni sem liggur að baki svona þætti, en við gerð hans hefði vissulega mátt nýta betur ýmsa þá möguleika sem framsetning í sjónvarpi býður upp á. Eftir þetta ævintýri var maður reynslunni ríkari og myndi standa allt öðruvisi að málum ef annað tækifæri byðist til þáttagerðar af jiessu tagi. Hvað tneð ráðgjöf sagn- frœðinga? Fledelius segirað sagnfræðingar eigi að vera til taks hvar og hvenœr setn fjallað er utn sagnfrœðileg efni. Helgi: Það er gömul og ný reynsla sagnfræðinga að sem ráðgjafar fá joeir ekki að segja margt. Það er aðallega verið að hafa vaðið fyrir neðan sig og skreyta sig með nöfnum. Erlendur: Maður hefur sjálfur dottið í Jzxá gryfju. Hins vegar er mikil styrkur í því, hver sem á í hlut, að fá einhvern til að gagnrýna og færa til betri vegar. Ég vildi óska að í framtíöinni kæmist á miklu virkara samstarf á milli sagnfræðinga og þeirra sem búa til heimildarþætti. í útgerðarsögunni hafa fleiri en einn veitt sagnfræðilega ráðgjöf. Mér hefur reynst betra að leita í smiðju til fleiri en eins Jdví enginn algildur sagn- fræðilegur sannleikur er til og gott er að fá fram mörg sjónarmið. Þetta er vafalaust gagnrýnisvert af hálfu Þar er beitt hinni vanalegu uppskrift: skot kvikmynda- tökumanns, tal stjórnanda þáttarins, lítil tengsl á milli og síðan eíííf viðtöl sem eru ekkert annað en myndskreytt útvarpsviðtöl. 81
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Ný saga

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.