Ný saga - 01.01.1995, Síða 32

Ný saga - 01.01.1995, Síða 32
Margrét Guðmundsdóttir Mynd 1. Sigurður Guðmundsson málari markaði íslenskum konum hlutverk á baráttusviði stjórn- málanna. I Ijóði sínu „Aldahrollur" bendir málarinn konum á eina leið til áhrifa og segir: „Haldi sama áfram enn / og ei Danir lúta senn / þá er ykkar eina vörn / aldrei meira fæða börn. ” blóm og litir voru auðugar táknlindir sem þeir teyguðu af áfergju. Tjáningarmáti og sköpun- arverk þeirra voru mótuð af endalausum táknum. Sigurður Guðmundsson fylgdi af trú- mennsku þeirri arfleið rómantísku stefnunnar að skapa táknmyndir. Hann orti að vísu að- eins fáein kvæði en notaði þess í stað mynd- listarmenntun sína til að hanna þjóðleg tákn, bæði fána og þjóðbúninga. Hlutleysi átti málarinn ákaflega erfitt með að þola. Árið 1869 lýsti Sigurður helsta átumeini Islendinga svo: mönnum stendur alveg á sama með allt, menn fást eiginlega hvorki til að lofa neitt né lasta, og ekkert þykir ljótt né fagurt, gott eða illt, menn eru orðnir bæði bragð- og lyktar- lausir, vilja svo að segja ekkert, nema peninga frá útlöndum, helst frá stjórninni; það vilja menn!5 Rómantískur eldhugi eins og Sigurður gat ekki sætt sig við afskiptaleysi og doða. Hugmyndafræði þjóðernisstefnunnar hafði djúp áhrif á lífsskoðun og starf Sigurðar. Þýski heimspekingurinn Johann Gottfried Herder var einn helsti jöfur þeirrar stefnu. Hann er hinn rétti faðir þjóðarandans sem Sigurður málari leitaði svo ákaft að. Herder setti fram þá hugmynd að vilji þjóðar til sjálf- stjórnar væri eðlislægur. Þjóðarandinn myndi leiðbeina þegnum sínum á farsælan hátt, ef hann væri vakandi. Stöðnun og doða mætti hins vegar rekja til dormandi þjóðaranda og þá væri sú hætta fyrir hendi að þjóðin sætti sig við erlenda stjórnendur. Rómantískir þjóð- ernissinnar eins og Sigurður litu eðlilega til fortíðarinnar að fyrirmyndum. Þá hefði glað- vakandi þjóðarandinn stýrt gjörðum frjálsra Islendinga. Síðustu árin í Kaupmannahöfn sökkti Sigurður sér í rannsóknir. Hús, klæðn- aður og vopn á meintu gullaldartímabili heimalandsins áttu hug hans. Þegar Sigurður kom heim frá námi árið 1858 var þjóðernisstefnan búin að skjóta rót- um á íslandi. Flestir sem létu sig stjórnmál einhverju varða virtust einhuga. Stefnan hafði verið mörkuð á Þingvallafundinum sjö árum fyrr. Vinna skyldi að nær algeru full- veldi Islendinga en halda formlegu konungs- sambandi við Danmörku. Almenningur sýndi stjórnmálum takmarkaðan áhuga. Lítið er vitað um fylgi alþýðu manna við þjóðernis- hreyfinguna fram undir lok aldarinnar. Eld- móður og eindrægni fáeinna leiðtoga mátti sín lítils ef meirihluti landsmanna hefði kosið að lúta stjórnarherrunum í Kaupmannahöfn. Kröftug og lifandi þjóðernisvitund var nauð- synleg forsenda í frelsisbaráttu íslendinga. Virkja þurfti fjöldann í baráttunni fyrir póli- tísku sjálfstæði. Skáld voru sennilega öflugustu áróðurs- meistarar frelsishreyfingarinnar fyrstu ára- tugina. Alþýðufólk sat ekki og rýndi í kenn- ingar Herders. Bergmál af hugsmíðum hans barst þó um síðir til almennings með milli- göngu rómantískra skálda og ættjarðarljóða. Jónas Hallgrímsson skáld setti fyrstur manna fram hugmyndir um frelsiseðli fslendinga, sem hann tengdi við náttúru landsins. Mennt- aðir sporgöngumenn hans tóku upp þessa hugmynd og síðar alþýðuskáldin.6 Skáldskap- ur gegndi hlutverki fjölmiðla á upphafsárum 30
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Ný saga

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.