Ný saga - 01.01.1995, Page 36

Ný saga - 01.01.1995, Page 36
Margrét Guðmundsdóttir Spéhræðsla og ótti við aðhlátur ertendra manna vann gegn sér- stökum þjóð- búningi karla hanna þjóðbúning fyrir karla. Nokkrir skóla- piltar í Reykjavík tóku hann upp vorið 1872.21 Ólafur Sigurðsson sýslumaður í Ási fann ýmsa vankanta á búningnum, skrifaði Sigurði og sagði: Mér lfka stuttbuxurnar í mörgu tilliti vel, en þó sé ég, að þær eru skjóllitlar um legg- inn í vetrarhörkum, svo menn þurfa þá að vera í þrennum sokkum, ef vel á að fara; en við sumarreiðar og slátt eru þær góðar, svo það kemur varla fyrir að skera þurfi saur neðanaf þeim, eins og Bergur hinn rakki gjörði á klæðum sínum forðum; en treyjan og vestið líst mér ekki vera eins hentugt á þessu kalda landi okkar. Ég vil hafa á þeim dálítinn kraga, því það er hentugra, það má vera standkragi ef vill, ég er ekki svo fastur við flákragana. Hugsaðu þig um þetta. Ég veit að þú vilt fylgja því gamla sem mest, en þegar nú á að fara að taka upp búninginn, vil ég láta laga hann um leið og fella burt það Ijótasta og óhentugasta.22 Karlmenn höfnuðu búningi Sigurðar og hann náði ekki frekari útbreiðslu. Þegar Sigurður fór að vinna að útbreiðslu kvenbúningsins fékk hann heldri konur fyrst í lið með sér. Feður þeirra, eiginmenn, bræður og synir voru ekki tilbúnir til að breyta klæðnaði sínum. Þeir hefðu til að mynda þurft að leggja síðbuxunum og taka upp hnébuxur. Þá fórn voru heldri karlmenn ekki reiðubún- ir að færa. Spéhræðsla og ótti við aðhlátur er- lendra manna vann gegn sérstökum þjóðbún- ingi karla.23 Þeir voru í raun búnir að taka upp annan einkennisbúning, jakkafötin. Sköpun- arsögu þeirra má rekja til frönsku byltingar- innar. Þá fór aðallinn úr hnébuxunum og fór að ganga í síðbuxum eins og almúginn. Jakka- fötin voru fullmótuð um aldamótin 1800 og hafa mjög lítið breyst síðan.24 Sigurður hélt góðu bréfasambandi við Jón Sigurðsson forseta. Þar kemur berlega fram að málaranum þótti íslenskar konur að öllu jöfnu standa framar kynbræðrum hans. Sum- arið 1870 skrifar hann Jóni hve vel gangi með kvenbúninginn, og bætir síðan við: Ég hefi allt af haft líka skoðun og þér, að kvenfólkið sé, ef til vill, úrvalið úr okkar þjóð, en hvikular eru þær um of, og föður- Iandstilfinning þeirra er eins og ósjálfráð eða óafvitandi. Þó held ég, að þær séu eitt- hvað farnar að hafa ljósari hugmynd um hana en áður, og ekki mun þurfa mikið til að vekja hana hjá þeim. Þær eru þó farnar að verða spentar fyrir okkar málefnum og það töluvert. Það er ekki að undra, þótt þær séu hvikular, því karlþjóðin er það má ske meira. ... Ég skal ekki spara að hvetja þær og hjálpa þeim sem ég get og hefi best vit á.25 Sigurður er að kalla eftir viðurkenningu frá leiðtoganum, og fær klapp á öxlina. Jón hrós- ar honum fyrir að koma „fylgi í kvenfólkið" og segir: „Þær geta gjört óttalega mikið, þar sem þær leggjast á, því enginn er heitari í and- anum, eða réttara að segja tilfinningunum og enginn fylgnari sér eða jafnvel klókari, þar sem því er að skipta.“26 Þeir félagar voru greinilega sammála um að konur væru meiri tilfinningaverur en karlar. Sigurður málari hamraði iðulega á því við kynbræður sína að hagnýta bæri meint séreinkenni kvenna í frelsisbaráttu þjóðarinnar. í árslok 1872 var fjallað um kvenréttinda- mál í Kvöldfélaginu. Þar hélt Sigurður þeirri skoðun enn á lofti að föðurlandsást kvenna væri meiri en karla, og „ætti slíkt eigi að vera látið ónotað." Hann sagði að einnig ætti að nota hégómagirnd kvenna „því keppnin getur gjört mikið að verkurn." Gísli Magnússon lat- ínukennari reis upp til andsvara. Hann kvaðst þekkja mörg dæmi um föðurlandsást karla en fá meðal kvenna, „því þó kvenfólk skræki blíðlegar um slíkt, þá er slíkt lítilsvert.“ Eirík- ur Briem prestaskólakennari tók hins vegar undir með Sigurði og sagði: „Föðurlandsást, eins og alla ást, ætla ég kvenmenn hafi öllu fremur en karlmenn.“27 Kona að skapi þeirra Sigurðar og Eiríks var Guðrún Gísladóttir. Þau Eiríkur gengu í hjónaband sumarið 1874, skömmu áður en Sigurður lést. Ættjarð- arást Guðrúnar var mjög sterk, og hún „elskaði ekki danskinn“, að sögn nöfnu henn- ar Borgfjörð.28 Málarinn taldi það einmitt „lífsspursmál" fyrir íslendinga að hata Dani. Sú afstaða spratt ekki af persónulegri óvild, heldur pólitísku raunsæi. Mála varð „óvin- inn“ sterkum litum og undirstrika ofbeldi hans. Þjóðina var ekki hægt að sameina í frelsisstríð gegn vindmyllum. Á fundi í Kvöld-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Ný saga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ný saga
https://timarit.is/publication/806

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.